ÞJÓÐMINJALÖG Nr. 52 19. maí 1969 I. KAFLI Þjóðminjasafn íslands. 1. gr. Þjóðminjasafn Islands er eign íslenzka ríkisins. Forseti skipar þjóðminjavörð, sem stjómar safninu undir yfirumsjón mennta- málaráðuneytisins. 2. gr. Þjóðminjasafnið er miðstöð allrar þjóðminjavörzlu í landinu. Það skal varðveita íslenzkar þjóðminjar í víðasta skilningi, hvort sem eru gripir geymdir í safninu sjálfu eða fornminjar og friðuð mann- virki, sem um er f jallað í sérstökum köflum laga þessara. 3. gr. Safnið skal vera til sýnis almenningi á tilteknum tímum, svo og fornminjar og mannvirki friðuð á þess vegum, þegar þau hafa verið gerð sýningarhæf og aðrar ástæður leyfa. 4. gr. Safnið má eigi taka við gjöfum, sem kvaðir fylgja, en þó getur menntamálaráðherra veitt undanþágu frá þessu ákvæði, ef sérstaklega stendur á. 5. gr. Heimilt er að lána gripi úr safninu til sýningar, en þó eigi til' út- landa nema með samþykki menntamálaráðherra. 6. gr. Eigi má nota myndir af gripum safnsins sem vörumerki eða í aug- lýsingaskyni og ekki heldur gera af þeim myndir eða eftirlíkingar nema með leyfi þjóðminjavarðar.