ÞJÓÐMINJALÖG ________________________11 31. gr. Ef slíkar breytingar, sem um er getið í 1. málsgr. 30. gr., hafa verið gerðar án leyfis húsafriðunarnefndar, getur hún lagt fyrir eiganda að færa húsið eða húshlutann í hið fyrra horf innan hæfilegs frests. Nú sinnir eigandi ekki fyrirmælum nefndarinnar, og getur hún þá, að fengnu samþykki menntamálaráðherra, látið framkvæma verkið á kostnað eiganda. 32. gr. Ef vanrækt er viðhald húss í A-flokki eða ytra borðs húss eða hús- hluta í B-flokki, getur húsafriðunarnefnd lagt fyrir eiganda eða af- notahafa að gera umbætur innan hæfilegs frests. Nú líður frestur, án þess að úr sé bætt, og getur þá húsafriðunarnefnd, að fengnu sam- þykki menntamálaráðherra, látið framkvæma verkið á kostnað eig- anda eða afnotahafa. 33. gr. Nú verður friðlýst eign fyrir spjöllum af eldi eða öðrum ástæðum, og skal eigandi eða afnotahafi þá gera húsafriðunarnefnd viðvart um það þegar í stað. Lætur nefndin þá fara fram skoðunargerð og mat á spjöllum. Ef ráðizt verður í endurbyggingu, gilda ákvæ'ði 30. gr. 34. gr. Nú samþykkir eigandi húss eða húshluta friðun, þar á meðal að hús verði hvorki rifið né flutt af stað sínum, og skal þá þinglýsa sérstak- lega yfirlýsingu hans um það, enda bindur hún þá einnig síðari eig- endur eða aðra rétthafa að eigninni. Þegar svo stendur á sem í 1. mgr. segir, getur húsafriðunarnefnd veitt eiganda styrk til viðhalds á eigninni, ef hún telur það sann- gjarnt vegna friðunarákvæ'ða, enda hafi verið veitt fé á fjárlögum í þeim tilgangi. Hafi friðun verið ákveðin samkvæmt 2. mgr. 26. gr., ákveður sveitarstjórn styrkinn og greiðist hann úr sveitarsjóði. 35. gr. Nú vill eigandi friðaðs húss eða húshluta, sem ákvæði 34. gr. taka ekki til, rífa húsið eða flytja það af stað sínum, og skal hann þá sækja um leyfi til þess til húsafriðunarnefndar. Nefndin skal, svo fljótt sem við verður komi'ð, senda menntamálaráðherra umsóknina með tillögum sínum. Ef ráðherra leyfir niðurrif eða brottflutning, skal, að framkvæmd lokinni, aflýsa friðunarkvöðinni. Hafi sveitarstjórn ákveðið friðun, sendir nefndin henni erindið til ákvörðunar á sama hátt. Ef ráðherra samþykkir ekki umsóknina, getur hann, að fengnum