GISLI GESTSSON GÖMUL HÚS Á NCPSSTAÐ Bærinn Núpsstaður í Fljótshverfi er vestan við Skeiðarársand og dregur nafn af Lómagnúpi; hann er austasti bær í Vestur- Skaftafellssýslu. Mislangt er til bæja frá Núpsstað. Hálfrar stundar gangur vestur að Rauðabergi, en 7 klukkutíma lestaferð að Skafta- felli, ef ekki verða tafir við stórfljót á leiðinni, sem oft eru raunar tvísýn eða ófær. Á Núpsstað hafa lengi búið hjónin Hannes Jóns- son og Þóranna Þórarinsdóttir með sonum sínum tveimur, Eyjólfi og Filippusi, en Hannes lézt 1968. Á þessu góða heimili hefi ég löng- um dvalið og ætíð notið hinnar beztu fyrirgreiðslu og gestrisni, sem mér er ljúft að þakka. Á Núpsstað var allstæðilegur bær á síðasta hluta 19. aldar, þegar Hannes bóndi Jónsson var að alast þar upp, en hann var fæddur þar á Litlahússloftinu 13. janúar 1880. Sumt af bæjarhúsunum stendur enn lítið eða ekki breytt, en austustu húsin, skáli, búr og Litlahús, voru rifin sumarið 1891 eða 1892, þegar Hannes var 11 eða 12 ára gamall. Hannesi var bærinn minnisstæður, og hann hefir lýst honum fyrir mér, einkum í júlí árið 1961, en raunar oft síðan. Árið 1904 voru teknar tvær ljósmyndir af bænum á Núpsstáð. Þá fyrri tók Eggert Guðmundsson frá Söndum í Meðallandi, en hann var í fylgd með dönskum landmælingamönnum. Hina síðari tók dr. Paul Herrmann í júlí, er hann var á leið austur um Skafta- fellssýslu. Á báðum þessum myndum sjást byggingar, sem nú eru horfnar. Loks standa sum gömlu húsin enn að nokkru eða öllu leyti, svo sem fyrr var sagt. Eftir þessum heimildum hefi ég gert uppdrátt af bænum og samið eftirfarandi lýsingu af honum. Raunar er lýsingin fyrst og fremst gerð eftir fyrirsögn Hannesar, en mál öllu meira fundin eftir myndum og mælingum húsa. Hefst lýsingin á austustu húsunum og er fyrst lýst bæ og bæjarhúsum, en síðar öðrum byggingum innan