GÖMUL HÚS Á NÚPSSTAÐ 17 2. mynd. Bærinn á Núpsstaö 1901f. 1 fremstu röö sjást þessi hús talið frá vinstri: Hjallur, skemma, smiðja, þá autt bil, þar sem Litlaskemma var áður, þá fjós, stofa, gestakamers, bjardyr og búr. Yfir hjall sést burst vestustu Möðu, yfir smiðju önnur hlaða og yfir stofu má greina kamarsburstina og burst Baðstofuhlöðu. Austur undan búrinu sést þekja eldhússins. Ljósm. Eggert Guðmundsson, eig. National- museet, Kaupmannahöfn. þessa röð sést önnur húsaröð; tvær hlöður á bak við vestri húsin og þriðja hlaðan nokkru vestar en vestasta hús fremri húsaraðar- innar, hjallurinn. Þess er a'ð vænta, að þar að húsabaki sé og eld- hús, þó það sjáist ekki neðan af túni, og loks má vera að við sjáum einhversstaðar í gegnum húsasund í kamarsburstina efst og aftast allra húsanna. Þegar frá eru tekin þilin, sem upphaflega voru bikuð, er bærinn algrænn á sumrum. Veggir og kampar, sem snúa fram að hlaðinu, eru að vísu hlaðnir úr torfi og grjóti á víxl, einkum neðantil, en venjulega vex svo mikið gras út úr torfinu, að veggurinn er grænn tilsýndar. Aðrir veggir eru flestir snidduhlaðnir, svo að gróin jörð breiðist eins og einn feldur yfir öll þessi hús. Það er rétt áð gera sér ljóst, að Núpsstaður var ekki neitt höfuð- ból, þótt jörðin sé með hinum stærstu, nær frá Vatnajökli niður að sjó, en það eru nær 50 km, en mikill hluti þessa lands er sandar, 2