20 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS norðan þeirra var stiginn upp á bæjardyraloftið. Ekki er nú kunn- ugt, hvar hurð var í þeim dyrum né hvert hún opnaðist. Skálinn með búri var langstærsta hús bæjarins", segir Hannes. Það hefir verið um 3,80 m á breidd og allt að 9,60 m langt inn í búrgafl, en skáli og búr voru saman í einni tóft og mynduðu eitt langhús, sem sneri austur-vest- ur eins og bæjarröðin. Var skálinn í vesturenda, en búrið í austurenda og timburþil á milli. Búrendinn náði austur á móts við kirkjugarð og var svo mjótt á milli, að austast var allt eitt, búrveggur og kirkju- garðsveggur, en þó mátti ganga þar á milli kirkjugarðs og búrþekju eftir veggnum. Við norðurvegg skála vestanhallt við miðju var lokrekkja, rekkju- botninn í mittishæð. Hún var mjög stutt eins og hún væri ekki gerð fyrir fullorðinn mann. Lokrekkjan var alþiljuð, dyr fyrir miðju og rennihurð fyrir. Undir lokrekkjunni var rúmstæði og mátti sitja á því og var þó lágt undir lokrekkjubotninn. Einnig mátti sitja upp- réttur í lokrekkjudyrunum. Skálinn var óþiljaður og með mold- argólfi, og var þar fátt gripa inni. Þó stóð kvörnin í suðaustur- horni við búrþilið. Við vesturvegg reis rimastigi, og var gengið úr honum upp á skálaloftið. Gólf skálaloftsins náði hvorki vestur að gafli né austur á móts við búrþil. Það lá á sjálfum sperrubitunum og var því í reynd miklu mjórra en skálinn sjálfur (líkt og enn má sjá t. d. á Keldum). Loftið var þiljað frá skála (og búri) að austan, en opið á móti gafl- hlaðinu að vestan, þar sem smogið var upp í það úr rimastiganum. Var þáð heldur þröng leið", segir Hannes. Á skálalofti voru áður tvö rúm, en eftir að Halldóra Jónsdóttir, sem svaf þar í öðru rúm- inu, dó árið 1882, var þar aðeins eitt rúm. Það stóð austur undir þili og var þá nálægt því í miðjum skálanum. Allt skálaloftið mun vart hafa verið meira en 8 m að lengd. Á suðurþekjunni var gluggi. Búr var þiljað frá skálanum og var gólfið í því háu þrepi lægra en í honum. Dyr voru á miðju þili. Ekki voru skörp horn á milli gafls og veggja, heldur var hleðslan bogadregin fyrir bæði hornin. 1 búrinu stóð skyrtunna og skyrsár. Yfir hann var brætt smér á vetrum, eftir að skyrið í honum hafði brotið sig. Fleiri tunnur stóðu þar og við suðurvegg stóð mikil byrða. í henni var geymd skreið. Byrðan var með okum á hornum og opi eða dyrum að framan og var svo stór, að inn í hana þurfti að smjúga eftir því, sem geymt var innst í henni. Rétt austan við þilið var gluggi, sem náði eitthvað niður í vegginn og upp í þekjuna. Hús þetta, skáli og búr, var þannig byggt, áð innan við veggina,