GÖMUL HÚS Á NÚPSSTAÐ 21 sem voru innanvert hlaðnir úr grjóti, stóðu stoðir á steinum. Á þeim hvíldu móleður eða staflægjur, en þar yfir lágu bitar um þvera tóftina. Sperrur stóðu á bitunum, og voru sperrutærnar negldar með trénöglum ofan í bitaendana, en sperrurnar voru stall- aðar að ofan og trénegldar saman. Á sperrunum lágu þrju langbönd hvorum megin undir reisifjöl, en þar yfir hella. Á hellurnar voru lagðir graskekkir og grasinu snúið inn, síðan var ytra borð þeirra jafnað og l'oks tyrft yfir með mýrartorfi. Framan við skálann vestast var byggt lítið svefnhús í samskonar tóft og skálinn sjálfur, en þil hússins, sem var á hlið við bæjar- dyraþilið og sneri eins og þa'ð, var aðeins hálfþil, en undir því og framan við það var dekk eða gluggadekk. Á þilinu voru tveir glugg- ar hvor upp af öðrum, báðir með 6 rúðum, en efri glugginn var miklu minni. Þetta hús var nefnt Litlahús, það mun hafa verið port- byggt, alþiljað með skarsúð, en þó með moldargólfi, lengd 3,20 m, breidd 2,40 m. Gengið var úr skálanum inn í húsið. Þar stóð niðri lítil kommó'ða undir glugganum og tvö rúm sitt hvorum megin henn- ar við veggina. Yfir gl'ugganum, uppi undir lofti, var hilla, sem á voru geymdar postillur o. fl. guðsorðabækur. Aftan við eystra rúm- ið var stigi upp á loft, og var hleri yfir stigagatinu. I þessum rúmum sváfu áður Eyjólfur Stefánsson og fyrst Margrét Ðag- bjartsdóttir, afi og amma Hannesar Jónssonar, en síðar Eyjólfur og síðari kona hans Margrét Jónsdóttir, og Hannes eftir að móðir hans dó. Loks sváfu þar Jón Jónsson, faðir Hannesar, og Valgerður kona hans, stjúpa Hannesar. Uppi á loftinu voru einnig tvö rúm, og þar svaf Margrét Eyjólfs- dóttir, móðir Hannesar, og frá henni var hann borinn tveggja ára þegar hún var látin. Næsta hús vestan bæjardyra var stofa. Það sneri eins og bæjar- dyrahúsið, breidd um 2,80 m og lengd 6,70 m. Fram að hlaðinu sneri þilstafn með tveimur sexrúðna gluggum samhliða yfir gluggadekki, og einum glugga fyrir ofan þá (á loftinu), einnig með sex rúð- Um. 1 þessu húsi voru fremst stofa, í miðju gangur með Kaffihúsi og aftast kamers og undir því skot, en yfir stofu og gangi var loft. Stofan sjálf var að innanmáli 2,80 m á breidd og 3,30 m að lengd. Hún var alþiljuð með timburgólfi. Þilin voru spjaldsett með mið- syllu og var lengra bil ofan hennar en neðan. Listar voru á milli spjalda. Stofan var máluð; á'ður voru listar og syílur dökkbláar, en spjöld ljósblá. Síðar voru listar og syllur rauðar, en spjöld nærri hvít. Hurðin var rammahurð með tveimur þverlistum og þremur