GÖMUL HtTS Á NÚPSSTAÐ 25 v^SBr*" ?>: ¦ & JrÆvvTjl * -j i _i i i^ ,»*! ¦i'M ¦ ? tí1 6. mynd. Fjós og Baöstofuhlaöa. teininum í gegnum há eða lág göt, en það fór eftir stærð pottanna, sem í hónum héngu. Hlóðin voru fyrst og fremst gerð fyrir einn pott, en fyrir kom, að eldurinn var lengdur til vesturs og ,yfir hann sett járngrind e'ða þrífótur og látinn á hana lítill pottur eða ketill t. d. til að hita kaffivatn. Undirblástur lá suður í bæjardyrnar, en hann kom mjög skakkt að hlóðunum, sem sneru á móti norðri, og gerði því lítið gagn. Þessi umbúnáður mun ekki hafa verið mjög gamall. Þegar snerpa þurfti í hlóðunum, var venjulega notaður laus físibelgur úr skinni með tveimur hlemmum og höldum sitt á hvorum hlemm. Austurendi eldhússins var nefndur taðstál. Þar var geymd skán og hreinatað, en það var kúamykja, sem borin hafði verið á tún og látin þorna, en síðan ekki mulin niður heldur rökuð af og borin heim í taðstál. í rjáfrinu hékk hangiket. Skæðaskinn, sauðskinn og stórgripahúðir héngu bæði þar og með veggjum fram, ásamt belgjum méð sellýsi til ljósmatar og bræðingsgerðar,