GÖMUL HÚS Á NÚPSSTAÐ 29 8. mynd. Rjáfur Baðstofuhlööu. Á miðri mynd sést skotsperran undir sam- skeytum á mæniás í bilinu á milli tveggja fremstu stoöasamstæðna. Neöst sést efri endi dvergs. þar því lítið rúm fyrir annað. Þó héngu þar reipi og fleiri bönd og í viðlögum voru þar geymdir reiðingar. Nú hefir verið lýst hinum eiginlegu bæjarhúsum á Núpsstað, en á bak við þau var húsagarður og þar stóðu þrjár hlöður og heygarð- ur. Austast var Baðstofuhlaðan. Hún stóð vestanhallt við eldhúsið og aftur af baðstofu, þar af er nafnið dregið. Baðstofuhlaðan stend- ur enn. Hún er rúmlega 8 m löng og rúmlega 3 m breið. Veggir hennar eru að innan úr grjóti einu saman svo sem í öðrum hlöðum á Núpsstað. Á gólfinu standa vænir stoðasteinar í tveimur samhliða röðum, 5 hvorum megin. Eru um 75 sm frá röðunum út að veggjum, en 1,5 m á milli þeirra. Innstu og fremstu steinasamstæðurnar standa