GÖMUL HÚS Á NUPSSTAÐ ____________________________31 þeim var lyft yfir garðinn. Kamarinn stóð svo sem áður var sagt í veggnum upp undan norðausturhorni heygarðsins. Nú er rétt að gera sér grein fyrir, hve nákvæmar eru stærðir þeirra húsa, sem hér er lýst og mörkuð eru á uppdráttinn. Breidd húsanna ákvarðast af þeim húsum, sem enn eru til, einkum hjalli og eldhúsi og loks af gafli gamla búrsins, sem enn mótar vel fyrir. Þegar þetta er borið saman við ljósmyndirnar tvær, sést áð frávikið frá raun- verulegri breidd þeirra húsa, sem sjást á ljósmyndunum, getur ekki verið yfir 10 sm, þ. e. a. s. að framan, en gera ver'ður ráð fyrir, að veggir kunni að hafa verið misbeinir. Lengd húsanna ákvarðast einn- ig af eftirstandandi húsum, einkum eldhúsi og Baðstofuhlöðu, en einn- ig af vitneskju um húsgögn og rúmafjölda og afstöðu þeirra. Hygg ég að ónákvæmnin geti óvíða verið meiri en svo sem 15 sm. Tortryggi- legust er breidd skálans, en þegar þess er gætt að þar á skálaloftinu stóðu tvö rúm, hvort undir sinni súð og þó gengt á milli, og enn fremur, að Hannes taldi skálann (áð meðtöldu búrinu) hafa verið stærsta og víðasta húsið á bænum, þá verður að álykta, að skálinn geti all's ekki hafa verið meira en svo sem 10 sm mjórri í hæsta lagi, og vart mörgum sm breiðari. Þessar hugleiðingar gilda þó einkum um bæjarhúsin, því nokkru meira kann að muna á hjalli, skemmu, fjósi og hlöðum, öðrum en Baðstofuhlöðu, einkum að því er varðar lengd húsanna, en breiddir ættu að vera nærri réttu lagi. Þegar búið var áð rífa skála, búr og Litlahús, ásamt veggnum á milli bæjardyra og skála, var byggt nýtt búr austan við bæjar- dyrnar. Það sneri eins og bæjardyrahúsið og stóð jafnframarlega og það. Aðeins var timburþil á milli. Loft var í húsinu með litlum glugga. Þar átti Hannes rennibekk. Skömmu síðar var rifinn vegg- urinn á milli bæjardyra og stofu og þar gert gestakamers. Á því var einn gluggi með sex rúðum og smágluggi var í burstinni (þar hefir l'íklega verið lítið geymsluloft). Niðri var eitt rúm við vesturvegg, en í herbergið var gengið norðan úr ganginum. Samtímis var kam- ersinu norðan stofu breytt. Gólfið í því var lækkað og Svartaskot tekið af. Smíði búrs og gestakamers annaðist Jón Einarsson í Skaftafelli og með honum vann við búrið Jón Þorsteinsson Hólm (bróðir Torfhildar Hólm), sem kallaður var skrubbur, eða raunar kallaði hann sig það sjálfur til gamans (sbr. skrubbhefill). Um svipað leyti mun fjósi og baðstofu hafa verið breytt, sett nýtt járn- þak á miðhlöðuna og hún lengd fram, einnig hefir hjalli og vestri skemmu verið breytt og Litlaskemma rifin, en hjallur og (vestri)