GÖMUL HÚS A NÚPSSTAÐ 35 12. mynd. Sperra l austurenda Stóra- hesthúss. 11. mynd. Þverskurður Stórahesthúss um bita vestan dyra. 1S. mynd. Þverskurður þaks yfir dyrum Stórahesthúss. lit. mynd. Grunnmynd Efstahesthúss. Það er nokkru minna en hitt hesthúsið, 5 m 1., um 2 m br., en hér er allsterklegur mæniás, sem nær óstuddur út á bæði gaflhlöð. Reft er af honum út á veggi, og þar yfir er helluþak undir torfi, en í þessu húsi eru annars hvorki bitar né sperrur. Umbúnaður dyra er svip- aður og í II, en nú er komin hurð fyrir það innst í dyragangi. Áður var því lokað með slagbrandi. Hæð dyra er 137 sm, og br. 60 sm. 1 báðum endum eru hlaðnir um 50 sm háir stallar, og á þeim eru um 50 sm br. jötur og ná jötubrúnirnar upp í 100 sm hæð. Hér hefir verið lýst húsum þeim, sem standa í túninu neðan traða. Þess skal getið, að austan þessa síðast talda hesthúss var kálgarður, sem náði austur undir skemmuhorn. Hann er nú af lagður, og er þar nú tún. IV. Flatasteinshesthús. Dálitlum spöl norðar er nýlegt hesthús byggt upp að mjög stórum kletti í túnjaðrinum, og er kletturinn raunar gafl hússins. Hann heitir Flatisteinn. Þó húsið sé nýlegt, hef ir það þó einu sinni verið stækkað; lengd þess er nú 6,5 m, br. 3,75 m. Húsi'ð er byggt eins og einstæðuf jós með mjóa stétt við vestur-