36 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 15. mynd. Efstahesthús hægra megin, Flatasteinshesthús fjær t. v. vegg og þá flór, 5 bása og f óðurgang meðfram austurvegg. Við suður- enda hússins er yfirbyggð for. Brúnir stallanna ná upp í nær 85 sm hæð, en jötudýptin er um 45 sm, hæð dyra 133 sm, br. 70 sm. Þak hússins er úr bárujárni yfir langböndum og sperrum. Þetta hús mun Hannes Jónsson hafa byggt handa pósthestunum, en á vetrum nutu þeir betri umönnunar á milli ferða en aðrir hestar. V. Hænsnakofi. Þetta hús var byggt um 1930 og var þá notað sem íshús. Þar var geymt refafóður, en þá var um skeið stunduð refarækt á Núpsstað. Húsið stendur niður við tráðir litlu austar en á móts við hús III. Það er að 1. 3 m, br. 2 m og lengd dyragangs 2,25 m, dyrahæð 130 sm, br. 53 sm. Húsið er með skúrþaki úr bárujárni undir mjög þykku moldar- eða torflagi, og er þessi umbúnaður orðinn heldur ótraustur. VI. Geitakofi. Einhvern tíma á búskaparárum sínum byggði Hannes Jónsson hús þetta í gamalli tóft, sem þó nefndist Nýjatóft, skammt norður frá húsi V. Upphaflega var þetta geitahús, en þegar geit-