38 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS ásendinn nú á þilsperrunni. Dyr eru í framþilinu, 70 sm víðar og 145 sm háar. Helluþak er á húsinu undir torfi. Það liggur á röftum, sem ná frá mæniás út á veggjapalla. Jötur eru sín með hvorum vegg, hæð og dýpt líkt og lýst var í húsi VI (17. mynd). Talið er að þetta hús taki 50 lömb. VIII. Eystralambhús. L. 4 m, br. 3 m. Húsið er svipað hinu lamb- húsinu, en þetta er enn með hlöðnum kömpum, 1,50 m þykkum, og innst yfir dyrunum, sem eru aðeins 55 sm víðar og 112 sm háar, er eins konar sperra, sem stendur á þvertré og ber mæniásinn þannig, að að ofan ganga sperrukjálkarnir á misvíxl og liggur mæniásinn í greipinni, en hinn endi ássins ligg- ur á gaflhlaðinu og auk þess standa tvær stoðir undir honum á miðju gólfi. Jötur eru með veggjum fram, 25 sm víðar og 2025 sm djúpar, en grjótbálkurinn, sem er undir jöt- unum, er 4045 sm hár. Eru því um 65 sm upp á jötubrún, þegar húsið er taðlaust, en minnkar niður í svo sem 30 sm, þegar húsið er fullt af skán á vorin. I þessu húsi rúmast 30 lömb. Beint norður af húsi VIII eru nokkrir mjög stórir klettar í tún- jaðrinum. Þar er gerð stór rétt með því að hlaða veggi á milli þeirra eða reisa þar trégrindur. Réttin er talsvert mannvirki og rúmar f jölda fjár. 17. mynd. Jata í Vestralambhúsi. Svo sem 10 mínútna gang vestan við Núpsstað, út með hlíðinni þar sem heitir í Hvömmum stendur f járhús og er hlaða beint aftur af því. Húsið er ekki gamalt, það er með járnþaki og dyragafli úr sama efni. Garði er í húsinu vestanhallt við miðju. Vestri króin er að br. 1,50 m, en eystri króin 1,85 m br. Garðinn er 50 sm br. Við austurvegg er jata um 25 sm br., en ekki er jata við vesturvegg. Fjárhúsið er talið taka um 130 kindur. Hláðan er svo sem fyrr segir beint aftur af húsinu. Hún er 9,80 m 1., en aðeins 2,90 m br., gerð upp með tveim- ur sto'ðaröðum undir langböndum og helluþaki að mestu, sbr. 19. mynd. Hlaðan var f járhús áður, en er henni var breytt í hlöðu var hún lengd sem svaraði kömpunum og nýja f járhúsið byggt fram af henni.