GÖMUL HÚS Á NÚPSSTAÐ 39 18. mynd. Frágangur viö dyr Eystralambhúss. Þar sem bílvegurinn liggur upp að hlíð Lómagnúps heita Selhólar. Þar hefir líklega verið sel forðum og sjást tvær litlar tóftir í hólun- um. Ofan við hól'ana hefir verið byggt fjárhús fyrir ekki löngu og raunar tvö heldur en eitt, hvort af annars enda og hláða á milli, allt undir einu risi járnklæddu; þetta eru garðahús og þó eru jötur með- fram báðum veggjum. Syðra húsið er 5,20 m 1. og 5,30 m br. Hlaðan er jafnbreið og um 10 m 1. Nyrðra húsið er enn jafnbreitt og líkt syðra húsi, nema hvað það er lengra eða nær 14 m langt. Garðarnir í húsum þessum eru um 60 sm br. og jötur nær 30 sm br. Krær um