40 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 19. mynd. Rjáfur hlöðunnar % Hvömmum. Ath. dverga og vaglbita. 2 m br. hvor. Húsin taka samtals á 3. hundrað fjár. Ofan húsanna er snotur túnblettur. Hellar. Um eða rétt fyrir 1790 hljóp afarstór skriða úr Lóma- gnúpi og nær um 1 km vestur á Leirur. Hún er kölluð Hlaupið. Rétt austan við Hl'aupið eru tveir geysistórir klettar uppi í hlíðinni og eru skútar undir þeim báðum, venjulega nefndir hellar. Vera má að klettarnir hafi komið um leið og hlaupið. Efri hellirinn er talsvert stærri. Gólfið í honum hefir líklega verið grafið nokkuð niður og síðan hafa verið hlaðnir veggir áð honum, á alla vegu og mjög mis- háir, frá nokkrum sentimetrum að góðri mannhæð. Ekki eru jötur né garðar í hellinum. Dyr eru á langvegg nær nyrðri enda og snúa á móti útsuðri. Hellishleðslan er nokkuð sporöskjulöguð, en þó eru lang- veggirnir beinir um miðbikið, 1. 9,80 m, br. 3,60 m. Neðri hellirinn er líkur hinum efri, en nokkru minni, 1. 6,20 m,