GÖMUL HUS Á NUPSSTAÐ 41 20. mynd. Selhólar. Binn á Núpsstað ber yfir manninn, fjárhiísiö t. h. br. 3,70. Hann snýr þvert við hinum hellinum, og eru dyrnar á syðri langvegg nær vesturenda og snúa á móti landsuðri. Allur er þessi hellir lægri og hleðslur minni, einkum við dyrnar sem eru að nokkru leyti náttúrlegar í klettinum. Vestan undir sama kletti er enn smá- skúti, sem fé liggur oft í. Ekki var siður að gefa fé í hellum þessum, en þá sjaldan að haglaust varð var hey flutt að og gefið á skalla, þar sem helzt var skjól. Enn liggur fé mjög gjarnan við hella þessa enda er ágæt beit þar í nágrenninu. Á fleiri stöðum sér til tófta, bæði heima undir bæ og í hlíðum Lómagnúps. Öll hafa þessi hús verið lítil og einkum ætluð til þess að fé gæti legið þar við, en ekki til þess að gefa þar hey. Bæði var heyfengur lítill á Núpsstað áður en tilbúinn áburður tók að berast og girðingar fóru að tíðkast um tún og engjar, og enn fremur má beit heita óbrigðul í hlíðum Lómagnúps. Þar var því ekki gert ráð fyrir að fé væri gefið hey í húsum, en ef endilega þurfti að gefa hey var þáð gert svo sem fyrr sagði á skjólgóðum stað, helzt í námunda við húsin, og fénu síðan beint þangað.