48 ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS bréfi, sem þar er til vitnað, segir Aðalsteinn Jóhannsson sögu fjalar- innar á þessa lund: Það fyrsta ég man eftir mér af húsaskipun hér á Skjaldfönn, var, að þar var hlóðaeldhús, eins og þau gerðust víðast hvar á bæjum um aldamót. Eldhús þetta var með tvennum hlóðum og var notað við stærri eldamennsku, svo sem slátursuðu, þvotta og þvíumlíkt, fram um 1940 eða liðlega það, en var þá rifið. I þessu eldhúsi, fyrir miðjum gafli, var fiskasteinn, sem barinn var á harðfiskur og bein þau, sem til féllu og notuð voru fyrir skepnur, því allt þess háttar var nýtt sem fóður. Steinn þessi var Kklega um 8 þumlunga þykkur og tók að mestu yfir stólsetuna, sem hann sat á, og hafði hann verið notaður það mikið, að ofan í hann var komin þó nokkur skál, en var þó hvergi sprunginn. Steinn þessi var síðan notaður í hlóðastein. Stóll sá, sem undir steininum var, var allsterklegur, á f jórum fótum, og stálhringur í kring að neðan, en aðeins fyrir enda að ofan, og úr setu þessa stóls er f jöl sú, sem ég sendi og þú ert að spyrja um. Útskurðurinn sneri niður og er þessi f jöl annar helmingur af breidd setunnar. Ég veit ekki, hvort setan hefur verið úr einni fjöl og þá klofnað eða verið saman sett, en ég býst við að hún hafi klofnað. Stóllinn mun hafa verið notaður sem viðhögg um tíma, áður en steinninn var settur á hann. Það sýndi laut sú sem var undir stein- inum, ef ég man rétt. Þá var líka mikið höggvið upp úr útskurði f jalar- helmings þess, sem glataður er, og fyrir það býst ég við, að hann hafi verið notaður í eldivið. Þessi fiskasteinn á téðum stól mun hafa verið búinn að sitja þarna áreiðanlega frá því um aldamót 1900 eða lengur, og vissu víst fáir um útskurð á f jöl þessari, en þó stendur það einhvern veginn í mér, að amma mín, Steinunn Jónsdóttir, hafi sagt, að þetta væri úr kirkjubrík eða einhverju slíku, en ég minnist ekki að hafa heyrt neitt um hvaðan þessi f jöl hafi komið hingað eða hvenær. En það hlýtur að vera mjög langt síðan að f jöl þessi kom hér, fyrst amma vissi ekki frekari deili á henni. Væri hugsanlegt, að þetta gæti hafa komið úr kirkju, sem hafi verið á Kirkjubóli í Langadal". Fjölin frá Skjaldfönn er nú stödd í Þjóðminjasafni íslands til at- hugunar, og þar á hún reyndar réttilega heima, því að þetta er forn- gripur. Henni verður nú lýst hér, svo og þeim útskurði, sem á henni er. Síðan verður reynt að finna þeim orðum stáð, sem í upphafi voru látin falla um stílinn á útskurðinum. Fjölin frá Skjaldfönn er úr furu, flöt og jafnþykk öll, 45,5 sm að lengd, 1819 sm á breidd og 2,5 sm á þykkt. Hún er illa leikin af