UTSKURÐUR FRÁ SKJALDFÖNN 49 tímans tönn, bakhliðin allfúin og ber nokkur merki eftir axarhögg og aðra barsmíð. Fjölin er aðeins bútur úr stærri planka eða borði. Sagað er þvert fyrir báða enda, gegnum útskurðinn, miskunnarlaust, og er nú ógerlegt að gizka á, hve löng f jölin hefur verið. Vinstri brúnin er klofningssár nýlegt, eins og þegar hefur verið vikið að. Hægri brúnin virðist aftur á móti vera upphafleg brún, en hún er nú mjög máð af fúa og líkast til veðrun, og ná þessar meinsemdir nokku'ð inn á flöt f jalarinnar og gera útskurðinn torráðinn á parti. Einhvern tíma í sögu f jalarinnar hafa verið settir á hana tveir þverokar, 7 sm breiðir, nær endum, og hefur þá verið ætlunin að slétta nokkuð undir þeim með því að flaga ofan af útskurðinum. I því skyni hafa verið sagaðar grunnar skorur þvers yfir, tvær og tvær fyrir okabreidinni. Síðan hefur verið sléttað undir efri okann milli skoranna, en einhverra hluta vegna hefur það ekki verið gert vi'ð neðri okann, heldur látið nægja að saga förin. Okarnir hafa verið negldir á með grófum járn- nöglum, sem enn eru í fjölinni að nokkru leyti. Stór kringlótt göt eru gegnum fjölina í okaförunum báðum, 4 sm frá hægri brún, en brotið er nú niður úr neðra gatinu. Þó að f jöl þessi hafi átt hrakningssama ævi, er útskurðurinn, sem þekur framhlið hennar, býsna skýr. Allt yfirborðið er að vísu nokkuð véðrað, svo að tréð er fremur æðabert, naglaför og einkum efra oka- farið spilla nokkuð fyrir, en yfirleitt er vandalaust að fylgja út- skurðinum eftir á öllum vinstri hluta f jalarinnar, jafnvel í okafarinu, og það er ekki fyrr en fer að nálgast hægri brún, að fúi og veðrun koma í veg fyrir að hægt sé að ráða útskurðinn alveg, og var þetta áður nefnt. Ljósmynd og uppdráttur eiga sameiginlega að veita góða hugmynd um útskurðinn, og vísast hér til þeirra í eitt skipti fyrir öll, og er nauðsynlegt að hafa myndirnar jafnan fyrir sér, þegar lesin er lýsing sú, sem hér fer á eftir, ef maður ætlar áð skilja allt eðli verksins. Lítum fyrst á breiðan, flatan stöngul með skörpum vel afmörkuð- um brúnum, sem kemur inn á fjölina frá vinstri brún, 12,5 sm ofan við neðri enda. Hann liggur í stórum boga inn og upp eftir fjölinni og sveigir síðan út af henni aftur efst uppi í vinstra horni. Enginn vafi er á, að hann hefur síðan farið alveg í hring, enda kemur hann aftur inn á fjölina innan í stóra sveignum og aftur út af henni, og enn gerir hann hið sama einu sinni enn og hefur þá mjókkað til muna. Við sjáum hér væna sneið af gríðarstórum uppundnum stöngli, sem er eins og hátt upphleypt flatt band. Á yzta sveignum neðanverðum er tvöföld innri útlína við ytri brún, en ekki vir'ðist hún hafa náð nema 4