50 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS stutt upp eftir, og er þetta eini votturinn af innri útlínum, sem í þessu skurðverki sést. Um stærsta og yzta sveiginn er annars það eitt að segja, að inn úr honum neðarlega vex grein, sem síðan sveigir lag- lega inn undir hann neðar og kemur aftur út undan honum og endar með þrískiptu blaði, og hugsanlegt er jafnvel að þar séu tvö þrískipt blöð hvort ofan á öðru, en það sést ekki nógu skýrt vegna veðrunar. Hins vegar er mjög skýrt þrískipt blað á þessari grein inni í sveignum og miðblaðið með skoru að endilöngu. Út úr miðsveig stóra uppundn- ingsins spretta tvær einkennilegar beinar greinar eða sprotar og skorið í aðra, svo að hún minnir á kylfu. Rétt fyrir ofan þessar grein- ar kvíslast svo grein úr jaðri sveigsins og hefur endað með litlu þrí- skiptu blaði inni á brún hans, og er enginn vafi á þessu, þótt blaðið sjálft sjáist ekki nú, af því að það hefur lent í okafarinu. Utan á innsta sveig stóra uppundningsins er neðarlega grein með kylfuhaus (minnir mest á reykjarpípu), en þar fyrir ofan jaðargrein með þrí- skiptu bláði alveg eins og á miðsveignum. Einnig þetta þrískipta blað hefur lent í okafarinu, en þó hefur ekki verið heflað dýpra en það, að vel mótar fyrir blaðinu. Innan í þessum innsta sveig uppundnings- ins sést svo frampartur af dýri, vafalaust ljóni. Framfætur þess sjást báðir, og er annar framan við en hinn aftan við miðsveiginn, en síðan koma þeir báðir niður á miðsveiginn, og þar sést hinn aftari mjög vel, en hinn er allmjög máður og greinir lítt smáatriði. Makki ljónsins er sýndur með skástrikum ofan við aftari fót, en upp frá fremri fæti gengur lína, sem á víst að afmarka bóginn á dýrinu. Það sem hér fyrir ofan sést af dýrinu er nú sléttað af okafarinu, svo að meira verður ekki greint, en sýnilega hefur ljónið snúið höfði aftur eftir. Þvert yfir aftari fót ljónsins liggur mjó grein inn á fjölina og endar með hinu venjulega þrískipta blaði. Ef við drögum saman það sem þegar hef ur verið lýst af skurðverk- inu, þá er þar um að ræða stóran uppundning með greinum og blöðum og innan í hann fléttað og flækt ljón með aftursnúnu höfði. Þetta kemur kunnuglega fyrir sjónir, en á fleira er að líta. Neðst til vinstri á fjölinni sjáum við búta úr öðrum stórum undn- ingi, og liggur yzti sveigurinn inn undir yzta sveiginn í þeim undn- ingi, sem þegar var lýst, þeir eru þannig fléttaðir saman. Bútur af öðrum innri sveig sést svo neðar, og yfir um hann sveigist langur og mjór drekaháls, og síðan sést haus drekans út í fjalarbrún, en þar vantar framan á hann, og hefði nú verið fróðlegt að sjá, hvernig trjónan hefur verið. Annað eyrað lafir niður, en hitt er nú mikið skaddað af naglafari, og þó sést fullvel, hvernig það hefur verið og