ÚTSKURÐUR FRÁ SKJALDFÖNN 51 legið uppi á undningssveignum. Allra neðst á fjölinni eru ávalar vindur, sem áreiðanlega eru hluti af drekanum, þó að nú sjáist ekki, hvernig sambandið er, og loks er þess að geta, að einkennilegt þver- band liggur yfir háls drekanum, og er hann sýnilega rammlega flæktur ekki síður en ljónið. Lítið þrískipt blað gægist upp undan drekatrjón- unni framarlega. Lítum svo á fjölina efst. Einnig þar sést um það bil helmingur af uppundningi, sem brugðið er í þann stærsta, sem fyrst var lýst. Neðst á yzta sveig hefur verið smágrein með þrískiptu blaði, sýnd á upp- drætti, þótt mjög lítið votti nú fyrir henni vegna þess að þetta er í okafarinu, en utar er svo önnur smágrein, sem hverfur inn undir yzta sveig stóra undningsins. Til vinstri á miðsveig er smágrein með þrískiptu blaði, sem við erum nú farin að þekkja svo vel, en til hægri önnur svipuð, þótt blaðið sé að vísu lítið eitt öðru vísi lagað, en það er mjög máð á f jölinni. Uppdrátturinn f er þó áreiðanlega mjög nærri lagi. Neðst á miðsveig er svo enn ein grein, sem hverfur undir stöngul stóra undningsins. Að lokum er svo endir undningsins innst í honum, og virðist þar vafalítið hafa verið fleirskipt blað, líklega fimmskipt. Að lokum er svo skreytið á hægri brún f jalarinnar, sem nú er mjög máð og veðrað og því erfitt um vik að lýsa því. Greinilegt er þó, að fyrir neðan miðju fjalar, í krikanum milli stóru uppundninganna tveggja, hefur verið enn einn undningur, minni og smágerðari en hinir, og á honum hafa verið aukagreinar. Upp frá honum vottar fyrir tveimur stórum þrískiptum blöðum, svipuðum og á smágreinum þeim, sem oft hafa þegar verið nefndar, en miklu stærri, einkum miðblaðið, sem er eftirtakanlega bjúgt, og sést það einkum vel á neðra blaðinu. Lóðréttur stilkur virðist hafa staðið upp í gegnum uppundninginn. Að öðru leyti en þessu er rétt að hafa sem fæst orð um þennan hluta verksins, því að örugg vissa um hvernig það hefur verið fæst ekki. Til dæmís verður ekki með vissu séð, hvort þetta verk hefur á lífrænan hátt tengzt öðru verki á f jölinni, þó að það megi telja mjög líklegt. Engu áð síður virðist það einkum hafa verið til fyllingar á auðan flöt utan við aðalverkið. Utskurðurinn á Skjaldfannarfjölinni er mjög vandaður og gerður af fullu öryggi. Einkenni skreytisins eru þessi: Stórir uppundningar úr flötum stönglum með skörpum brúnum, kúptur er aðeins hálsinn á drekanum og það sem sést af bol hans, svo og bringan á ljóninu. Verkið er mjög upphleypt, allt að 1 sm, en mjög víða um 5 mm og sums staðar minna. Undningarnir fléttast mjög saman, brugðið yfir og undir, og sama er að segja um sumar hliðargreinarnar á aðal-