BRÁKARSUND _________________________59 sund hafi orðið til. Þetta þrönga hamrasund eða stokkur þar sem sjórinn streymir á víxl út og inn, kann að hafa minnt fornmenn á j brák, sem þá hefur líklega verið til á hverjum bæ. Allir hafa þekkt þetta verkfæri og hafa séð vott og hrjúft skinn dregið í því fram og aftur. Eins og áður er á drepið getur straumurinn í Brákarsundi verið allstríður, og yfirborðið er ekki ávallt slétt. Vel mætti vera að sundið hefði í öndverðu verið kallað Brák, og má til samanburðar nefna tvö önnur borgfirzk örnefni, sem eiginlega voru heiti algengra amboða í þá tíð: Ok og Þyrill. 1 augum skáldlega hugsandi fornmanna gat hafið tekið á sig ýmsar myndir, og er hér sambærileg líking Snæbjarnar skálds í vísu sem Snorri tilfærir í Eddu, þar sem hann (samkvæmt líklegri skýringu Guðmundar Finnbogasonar í Skírni 1941) kallar hafið hergrimm- astan skerja Grotta, sem malar líðmeldr Amlóða. Grotti fGrótti?) var eins og Snorri segir síðar í Eddu nafn kvarnar einnar í Danmörku heldur stórfelldrar. En líðmeldr (malt, mjöl) Amlóða bendir ásamt fyrri líkingunni til þekkingar á frásögn svipaðri þeirri sem er í Dana- sögu Saxa af Amlóða (Amlethus): Og er þeir fóru fram hjá sand- hólum og honum var sagt áð líta á sandinn, sem var eins og korn, svaraði hann að það væri malað smátt af hinum hvítu öldum haf sins (þýð. Guðmundar). Vestast á Seltjarnarnesi, þar sem brimið sverfur skerin ár og síð, hefur bær heitið Grótta (nú viti). Sennilegt má þykja að þar dyljist hugmyndin um hina miklu kvörn hafsins, og mætti vera að bærinn hefði í öndverðu heitið at Grótta. Hafa mörg íslenzk örnefni breytzt meira en því nemur. Á hinn bóginn er alkunnugt að örnefni hafa oft orðið tilefni til sagna sem eiga að skýra upphaf nafnsins. Hér skal enginn dómur á það lagður, hver líkindi séu til að örnefnisskýring Egils sögu í þessu tilviki, sé eldri en sagan sjálf. SUMMARY In Egil's saga the placename Brákarsund occurs twice in ch. 40, and besides there is a description in ch. 33 of the topography of the sound in question. In ch. 40 the origin of the placename is explained. A bondswoman with the nickname Brák was drowned there. There can be no doubt that the Brákarsund of the saga is the sound between the southern tip of Borgarnes (the Digranes of the saga) and the isle of