62 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 1. mynd. Skildahúfa fÞjms. 10931/S, séð að framan. Ljósm.: Gísli Gestsson. Skildahúfa (National Museum, Reykjavík; Inv. No. 10934), front view. í miðju, 6,3 cm að þvermáli, og bekk með kornsettu hringvíravirki umhverfis, og eru á bekknum 4 hálfkúlur með hangandi krossum í, og eru í krossunum rauðir og bláir steinar. Hinir skildirnir 6 eru minni, allir eins; á miðju er krossfestingarmynd, Kristur, María og Jóhannes, og víravirkisbekkur umhverfis með 4 bl'öðum [laufum] í; þvermál 7,3 cm. Af þessum skjöldum hefur húfan hlotið nafn sitt; Skilt á dönsku, Schilt á lágþýzku, Schild á háþýzku, sbr. skildir (og skildingar) á íslenzku. Húfan er mjög þykk og stinn og afar þung [um 860 g]. Hún er talin hafa komið á Kunstkammer" kon- ungs í Höf n árið 1784, og var þá sagt, að ríkar konur á Islandi hef ðu fyrrum bori'ð slíkar húfur. Hún var látin í Þjóðminjasafnið í Höfn áriðl848 (9896)."3 Efst á skáflöt húfunnar og yfir samskeyti hans og kollsins er saumaður 2 cm breiður vírofinn borði. Kringum opið á húfunni er 1,8 cm breið brydding úr hör- og silkiborða, útofnum, og virðist hann upprunalega hafa verið rauður og hvítleitur. Að innan er húfan