SKILDAHÚFA 63 2. mynd. Skildahúfa (Þjms. 1093%), séö ofan frá. Ljósm.: Nationálmuseet, Kbh. ¦ Skildahúfa (National Museum, Reykjavík; Inv. No. 1093%), vievoed from above. fóðruð með þrykktu, fremur grófgerðu lérefti, en ferhyrnd bót, um 12 X 16 cm að stærð, einnig úr stórgerðu, þrykktu lérefti, hefur veri'ð þrædd yfir fóðrið í kollinum miðjum. Bæði þessi efni eru þrykkt í brúnum og rauðum lit, fóðrið með fremur stórgerðu rósa- munstri á brúnum grunni, en bótin með smágerðara kaflamunstri með blómum á hvítleitum grunni (3. mynd). Um millifóðrið í húfunni verður ekki sagt með fullri vissu, þar sem hún hefur ekki verið tekin í sundur. En gegnum rifu á fóðrinu á kollinum innanverðum má greina blátt, gróft ullarefni (vaðmál?) og þar undir raunar annað ullarefni, svartleitt (flóka?). Skáflötur- inn er mun þykkari og stinnari en kollurinn. Lætur nærri, að hann