66 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS k. mynd. Skildir af skildahúfu (Nationalmus. 12013/1964). Ljósm.: Dansk Fólke- museum. Skildir, ornamental disks from skildahúfa (National Museum, Copen- hagen; Inv. No. 12013/1961,J. 7 eru 6,6 cm að þvermáli [4. mynd]. Þeir eru allir með kornsettu hringvíravirki og með laufskorinni og grafinni rönd, með mörgum götum milli laufanna; hefur verið saumað í gegnum þau, er skild- irnir voru festir á húfuna; annars virðast hafa verið fætur aftan á þeim, 2 á stóra skildinum og 1 á þeim litlu, en hafa verið teknir af. Út við röndina er snúra og innan við hana eru 6 lykkjur á smá- skjöldunum, en hafa verið 15 á þeim stóra í kring umhverfis. 1 lykkjunum hanga steypt lauf, en mörg þeirra eru nú úr. Á miðjum stóra skildinum er snúra í kring, 3,5 cm að þvermáli og sléttur flöt- ur innan í með krossfestingarmynd, Kristsmynd og Maríu og Jóhannesar; kross er í rauninni enginn, hann hefur átt að graf- ast á grunninn. Skildirnir eru dálítið kúptir. Húfan sjálf finnst nú ekki, en sögð í skránni vera úr svörtu flaueli, mjög slitin; stóri skjöldurinn er sagður vera ofan á henni miðri og hinir 7 [6]8 utan um hann."9 1 skrá Þjóðminjasafns Dana árið 1861 er sagt, að skildahúfan,