68 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 6. mynd. Skildahúfa (Nationalmus. 12013/1961//, séð neðan frá. Ljósm.: Dansk Folke- museum. Skildahúfa (National Museum, Copenhagen; Inv. No. 12013/1961/), viewed from below. safnsins, en húfan sjálf verið afhent annarri deild til varðveizlu og tengslin milli hennar og skjaldanna þá rofnað um tíma. Við rannsókn þá og viðgerð, sem framkvæmd var á húfunni árið 1965, var skráð ýtarleg lýsing á henni. Hér fara á eftir helztu atriði hennar.12 Húfukollurinn, sem er um 22 cm að þvermáli, er gerður úr kringlóttu pappastykki, klæddu að ofan svarbrúnu ullarefni með vaðmálsvend, að neðan svörtu flaueli. Ofan á kollinum utanverðum er um 6 cm breiður pappahringur, 9,8 cm að þvermáli að innan, klæddur svörtu flaueli að ofan og svarbrúnum vaðmálsofnum ullar- dúki að neðan. Að innanverðu er hringurinn bryddur með 2 cm breiðum gylltum vírborða, og að utanverðu eru kollur og hringur