SKILDAHÚFA 69 fest saman með sams konar bryddingu (5. og 6. mynd). Yfir ytri bryddingunni var legging úr tveimur samansaumuðum gylltum vír- borðum, hvorum um 1,5 cm að breidd, en leggingin var fjarlægð við viðgerðina. Neðan við kollinn allt í kring er saumáður listi eða kantur, 9 cm breiður að framanf?], en mjókkar ofan í 4 cm að aftan [?] (7. mynd). Hann er úr grænu og svörtu silkiefni með vaðmálsvend, bryddur að neðan með svörtu satínofnu skábandi úr silki. Að innan var listinn fóðraður aðallega með ljósgráum pappa, sem klippt hafði veri'ð upp í á nokkrum stöðum, þannig að hægt var að brjóta listann inn undir kollinn. Þessi pappi var einnig fjar- lægður við viðgerðina, en rytjur af eldra pappafóðri næst kollinum skildar eftir. Er eldri pappinn sagður gulgrár að l'it, svipaður papp- anum í kollinum. Viðgerð húfunnar var aðallega fólgin í því, að lagt var undir göt og þau saumuð niður. Til dæmis var þannig gert við göt, sem dottin voru á ullarefnið á kollinum, og ennfremur var gert við gat, sem var á kollinum miðjum í gegnum allt í senn, ull'arefnið, pappann og flauelið. Þá var listinn fóðraður að nýju með tvöföldum pappa, klæddum svörtu moll"efni, og göt í græna og svarta silkiefninu saumuð niður við það. Þegar athugaðar eru upplýsingar og myndir varðandi skildahúf- una í Þjóðminjasafni Dana og þær bornar saman við húfuna í Þjóð- minjasafni Islands og hina nákvæmu lýsingu Sveins Pálssonar á húfu þeirri, sem hann skoðáði hjá prófastsfrúnni í Görðum árið 1791, má ljóst vera, að húfan í Þjóðminjasafni Dana hefur ekki varðveitzt í upprunalegri mynd, heldur mun kollurinn, sem nú er, þ. e. kringlan og hringurinn, vera upphaflega húfan, en listinn seinni tíma viðbót. Við breytinguna var upprunalegu húfunni hvolft við, þannig að flauelslagður kollurinn sneri niður (6. mynd), en húfuopið upp, svo að skein í vaðmálsofið ullarfóðrið (5. mynd), og listinn úr silkiefninu pappafóðruðu sí'ðan saumaður við. Virðist breytingin einna helzt hafa verið gerð í því skyni, að húfan yrði ekki sett ofan á fald, heldur beint á höfuðið, því að ummál listans að neðan er 55 cm, en ummál opsins á upprunalegu húfunni, þ. e. hrings- ins að innanverðu, er um 31 cm. Við skráningu húfunnar árið 1861 voru aðeins taldir vera á henni sjö skildir, einn stór og sex litlir,1!! en þegar Matthías Þórðarson gerði skrá sína ári'ð 1918, voru litlu skildirnir sjö talsins. Ýmis- legt bendir til, að fyrri talan sé rétt; til dæmis er einn af litlu skjöld- unum með meiri gyllingu en hinir og öðruvísi frágenginn að aftan