70 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS (þ. e. með áfestri málmkringlu, 5 cm að þvermáli), og skráningar- maður hefur, að því er virðist í upphafi, bætt spurningarmerki við töluna aftan á þessum sama skildi. Enn er þess að geta, að þótt víravirkismunstrið á skjöldunum virðist vera eins, eru á þessum skildi, og öðrum reyndar líka, sögð vera einhver örlítil frávik frá 7. mynd. 8. mynd. 7. mynd. Rissmynd af skildahúfu (Nationálmus. 12013/1961f) eins og hún er nú. Brotna línan markar hugsanlega miðju húfunnar aö framan. Sketch of skildahúfa (Nationál Museum, Copenhagen; Inv. No. 12013/1961/) in its present form. Broken line marks probáble centre front of cap. 8. mynd. Bissmynd af skildahúfu (Nationalmus. 12013/196^), séð ofan frá. Skjöldum raðaö á húfuna samkv. skrá safnsins frá árinu 1861. Sketch of skildahúfa (National Museum, Copenhagen; Inv. No. 12013/1961f), vievoed frorn above. Orna- mental disks, skildir, placed according to catalogue description frorn 1861. mumstrinu á hinum fimm. Sé því miðáð við, að á húfunni hafi alls verið sjö skildir, og hliðsjón höfð af lýsingunni við fyrstu skrá- setningu, má ímynda sér, að skjöldunum hafi, er húfan kom til safnsins, verið fyrir komið á kollinum eins og rissað er upp á 8. mynd: stóra skildinum yfir upprunalega húfuopinu í miðju (til þess að hylja ullarfóðrið?) en litlu skjöldunum sex dreift jafnt um flauelslagðan hringinn utan með. Sé hins vegar gert ráð fyrir, að átta skildir hafi verið á húfunni, þá rúmast sjö skildir einnig vel á hringnum. En hvort heldur sjö e'ða átta skildir hafa verið ofan á húfunni, er hún kom í safnið, má gera ráð fyrir, að hún hafi verið lítið notuð eftir að breytingin var gerð á henni, því að engin slitför sjást eftir skildina þannig ásaumaða. Þess má geta hér, að engin merki eftir ásaumaða skildi eru sögð sjáanleg á listanum. En hvernig má ætla, að skjöldunum hafi verið komið fyrir á húf- unni áður en henni var breytt? Þar má að sjálfsög'ðu einnig hafa