ÞORKELL GRÍMSSON og ÞORLEIFUR EINARSSON FORNMINJAR í REYKJAVÍK OG ALDURSGREININGAR Ráða má af íslendingabók Ara fróða, að Ingólfur Arnarson komi út hingað til' að setjast að árið 870. Var þetta önnur ferð hans til Islands, en nokkru áður litaðist hann hér um í leit byggilegs svæðis. Að sögn Landnámu dvelst Ingólfur sinn veturinn hvern að Ingólfs- höfða, Hjörleifshöfða og undir Ingólfsfjalli, og eftir það gerir hann sér bæ í Reykjavík. Nokkuð greinir menn á um, hvar bústaður hans muni reistur. Eftir einni tilgátu er það á Arnarhóli, enda fundust öndvegissúlurnar, sem Ingólfur varpar í sjóinn, reknar á fjöru þar, að því er sagan hermir. Flestir virðast samt álíta, að telja megi bæjarstæðið við Aðaístræti vestanvert, og gegnt kirkj- unni fornu, en hún var um aldaraðir í skrúðgarðinum, fyrrum kirkju- garði, austan við götu þessa. Loks benda menn á, að það muni geta ver- ið nokkru sunnar, eða þar sem Brúnsbær stóð áður, lítið býli á grund- unum norðan og vestan Tjarnar, þar sem nú er Tjarnargata 4. Fyrstu minjar, sem athugunar njóta, komu í ljós við gröft fyrir húsinu að Tjarnargötu 4. Segir nánar frá því hér á eftir. Hefur fundur þessi glætt áhuga manna á að fá úr því skorið, hvar Ingólfur muni hafa valið bæ sínum stað í öndverðu. Til kemur og, að 1974 heldur þjóðin hátíðlegt 1100 ára afmæli byggðar í landi sínu, og má því æskilegt þykja, að leifar bæjarins finnist. Menningarsöguleg sjónarmið og aðhlynning hvers kyns minja þurfa að sjálfsögðu að njóta viðurkenningar. Af þessum sökum tóku greinarhöfundar að sér að kanna útbreiðslu mannvistarleifa við Aðalstræti. Mun freistað að skýra hér frá árangri þessarar könnunar og eldri rannsóknum. Fornleifar að Tjarnargötu 4.. Vorið 1944 þokaði gamalt timbur- hús á lóðinni nr. 4 við Tjarnargötu, er grafinn var grunnur að nýju húsi fyrir Steindórsprent, liðlega tveggja metra djúpur. Fundust þarna ýmsar mannvistarleifar, sem vörpuðu nýstárlegu ljósi á sögu byggðar í landinu. Fræðimenn fylgdust með greftinum, og í greinar-