FORNMINJAR 1 REYKJAVlK 81 gerð þeirri, sem á eftir fer, verður stuðzt við gögn þeirra. Mun eink- um vitnað til greinar eftir Matthías Þórðarson þjóðminjavörð í Vik- unni 15. júní 1944 (nr. 2324, bls. 22 og 28), dagbóka jarðfræð- inganna Jóhannesar Áskelssonar og Gu'ðmundar Kjartanssonar og umsagna dr. Finns Guðmundssonar fuglafræðings. Þá höfum við notfært okkur upplýsingar frá lóðaskrárritara Reykjavíkur. Að Tjarnargötu 4 hagar þannig til, að um 4 metrar skilja að yfir- borð og sjó við jafnflæði, samkvæmt tölum frá lóðaskrárritara, og við mestu flóð er hæðarmunur nokkuð á annan metra. Guðmundur Kjartansson kom fyrstur fræðimanna að grunninum í Tjarnargötu 4, meðan á grefti stóð. Hann gerði síðan öðrum fræði- mönnum aðvart. Fylgja hér orðréttir kaflar úr dagbók hans: 25. apríl 1944: Kom þar að, sem verið var að grafa fyrir hús- grunni við Tjarnargötu í Reykjavík, sunnan við Herkastalann. Fór að hnýsast í graftarstálið og sá þar mikið af fuglabeinum og fleiri lífrænum leifum. Merkilegastur þótti mér fyrst í stað neðri kjálki úr svíni með stórum vígtönnum. Meðan ég var þar að snuðra, fannst fuglsgoggur, neðri kjálki af stórvöxnum svartfugli, og fékk ég grun um, að þáð væri geirfugl. Verkamennirnir gáfu mér gogginn, og auk þess safnaði ég nokkru af beinum. Eftir fremur stutta leit símaði ég til Finns Guðmundssonar mér til aðstoðar, en hann brá við snöggt og kom þegar á vettvang. Síðan hefur Finnur að mestu annazt þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið á staðnum, með að- stoð Geirs Gígja..... 26. apríl: Skrapp til Reykjavíkur til áð líta á jarðlagaskipun, þar sem verið er að grafa í Tjarnargötu. Hún er: IV. Hreyfð mold. III. Mókennt lag, 3050 cm. II. Moldkenndur leir, 520 cm. I. Lábarin iriöl. Mölin (1) kemur aðeins fram niðri í gryfjunni. Þar bungar hún upp, og aðeins þar nær gröfturinn niður á hana. Virðist þetta helzt vera ávalur malarkambur, sem liggur frá A til V. Mölin er úr smá- um völum, sandlaus. Sé stungið í hana skóflu sprettur upp vatn í farinu. [Skotið inn í síðar ofan við línuna:] Síðar var grafið nokkru dýpra og alls staðar niður í mölina (I). Varla er um nokkra kamb- lögun að ræða á henni. Sy'ðst í tóftinni, þar sem ógrafið var 26. apríl, lá stétt úr stórum hellum alveg niðri á mölinni, bersýnilega mann- virki, og óreglulegur ruðningur þar yfir. 6