84 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 3. mynd. Kjálki úr svíni með vigtönn, fundinn að Tjarnargötu 4 vorið Wkk' Kjdlkinn er 18,5 sm að lengd. Lower jaiv of pig, found at Tjarnargata k, spring of 19kk- Length 18.5 om. stórgervum hefilspónum, en einnig litlar spýtur, sumar telgdar eða með axarförum og sumar hálfbrunnar. Mórinn er sums staðar bland- aður viðarösku. Steinvölur liggja í honum á víð og dreif. Auk alls þessa er þar aragrúi af beinum spendýra og fugla, en þeim söfnuðu þeir Finnur og Geir. Einkennilegt grjóthart lag, aðeins tæpur cm á þykkt og úr efni, sem enn er órannsakað, lá á mótum mólagsins og yfirlags þess í NV-horni tóftarinnar. Efsta moldarlagið IV virðist allt hreyft af manna völdum. Það er blandað móösku og lausagrjóti. í NA-horni tóftarinnar kemur fram grjóthleðsla heldur óhrjáleg og úr lagi færð. Á þeim stað vantar mó- lagið (III), en grjót- og moldarruðningur nær þar niður á gryfju- botn. Bráðabirgðaniðurstaða: Malarlagið (I) hefur myndazt löngu fyrir landnámsöld, á þeim tímum, er sjávarmál lá nokkru hærra en nú. Leirlagið (II) hefur einnig myndazt fyrir Islands byggð, á tímum er sjávarmál lá líkt og nú eða lægra. Hefur áð líkindum setzt til á botni tjarnar (e. t. v. í vík norður úr Eeykjavíkurtjörn). Síðar hefur tjörn þessi tekið að gróa upp og hálfrotnar jurta- leifar hláðizt upp á botni hennar. tJr þeim er mókennda lagið III.