FORNMINJAR I REYKJAVÍK 85 Um það leyti eða litlu síðar hefur byggð festst í Reykjavík, og hefur bær staðið skammt frá þessari tjörn. I hana hefur verið fleygt alls konar sorpi, einkum beinum og ösku, enn fremur öðuskeljum. Hrís- kurlið og tréspænirnir benda til að furðu ósparlega hafi verið farið með eldsneyti. Virðist tjörnin hafa fyllzt upp af þessu sorpi jafn- framt því sem hún greri upp. Hinir annarlegu svínskjálkar og geir- fuglsbein benda til, að leifarnar séu mjög gamlar. Ruðningslagið (IV), sem efst liggur, sýnir mikið umrót og er eflaust að mestu leyti frá síðustu tímum, eftir að kaupstaður var risinn upp í Reykjavík". 1 fórum Finns Guðmundssonar er útdráttur á dönsku úr dagbók Jóhannesar Áskelssonar, en hann mældi snið vestanvert í stáli, er reis í grunni að norðan. Við höfum þýtt þennan texta lauslega. 1 svigum er getið jarðlagaheita Guðmundar Kjartanssonar til samanburðar. Lag F 20390 cm Brúnleitt, leirkennt lag, sem nær upp að gryfjnbarmi. Stórir steinar á tveimur stöð- um neðst og lágu þeir ofan á lagi E. Senni- lega veggleifar. (Hreyfð mold IV, G. Kj.). Lag E Dökkbrúnt, málmgljáandi, örþunnt lag (34 mm). Gólfskán? Lag D 9022 cm Svart, mókennt lag, nokkuð rotið (rotnunar- stig H 45). Talsvert um kvisti og bein. (Mókennt lag III, G. Kj.). Lag C 220 cm Brúnt leirlag, ógreinilega eða ekki lagskipt. í því eru á víð og dreif 34 mm þykkar, en stuttar, kolsvartar rendur. Að sögn verka- manna fundust bein neðst. (Moldkenndur leir II, G. Kj.). Lag B örþunn, rauðleit skán (23 mm), og þekur hún malarlagið, sem undir er. Lag A 0 m Lag af hnefastórum völum, er myndar botn grunnsins. Sennilega er um fornan malar- kamb að ræða, Völurnar roðaðar af mýra- rauða að utan. (Lábarin möl I, G. Kj.).