FORNMINJAR 1 REYKJAVlK 87 /f. mynd. Steinþró (eldstó) grafin ofan í möl í grunninum aö Tjarnar- götu I). Myndin tekin vorið 191/1/. Pit made of slabs, observed in the ground gravel at Tjarnargata 1/. Photo from 191/1/. eða grefi með fornri gerð, sams konar og 2 önnur, sem fundizt hafa áður hér á landi, annað við rannsóknina á Bólstað, bæjarrústum Arnkels goða. Ámóta neðarlega fannst vaðsteinn, hnöttóttur og nokkuð ílangur." Loks víkur Matthías að gripum í suðausturhorni: Þar fundust, mismunandi djúpt í jörðu, nokkrir munir úr steini, 3 vaðsteinar, brýni, fornlegur lýsisteinn, sem er mjög lítill og flatkúlumyndaður, og snældusnúður úr steini, allstór, um 9 cm að þverm." Timburhúsið að Tjarnargötu 4 byggði Hannes Erlendsson á Mel um 1830 úr torfbýli á sama stað. Var þá lokið sögu einhverrar mætustu eigu okkar, því húsið, má sjá í skjali frá 1759, telst hluti bæjarins í Reykjavík. Smíðar timburhússins getur í handriti eftir Sigurð Guðmundsson málara í eigu Þjóðminjasafnsins. Kallast það Um forna Reykjavíkurbæ." Þetta eru lauslegar minnisgreinar, nafn ekki við, en höndin auðþekkt. Haft er eftir Hannesi, að legið