88 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS hafi tvö til þrjú þrep niður í gamla húsið. Það hét Brúnsbær, eftir Christine Bruun, ekkju Sigvards Bruun fangavarðar, er þarna bjó. Áður var hér beykisíbúð innréttinga. Til þeirra gekk húsið, er konungur afhenti jörðina. Samkvæmt dagbók Jóhannesar Áskelssonar liggur þunn skán í 1, 13 m dýpi, sem hann taldi, að kynni áð vera gólfskán (lag E, J. Á.). Ekki virðist ósennilegt, að gólf Brúnsbæjar hafi staðizt á við lag þetta, enda tvær til þrjár tröppur niður og í sama dýpi finnst grjót, er rekja mætti til bæjarins. Ruðningslagið (lag F, J. Á.) er svo yngra, og hafa menn l'íklega sléttað hér úr veggjum á býlisgrunni. Fornu munirnir lágu flestir dýpra en lag E. Brúnsbær rís því senni- lega talsvert seinna en elzta byggð í Reykjavík. Nokkrir munir fundust í efri hluta grunns. Þeir eru frá næst- liðnum öldum að sjá, en flestir, eða svo má álykta, voru í mólaginu (lag D, J. Á.), og virðast því eldri Brúnsbæ. Matthías telur elztu munina frá söguöld eða landnámi. Af beinafundunum verður aidur mólagsins ráðinn nokkuð. Svín teljast algeng húsdýr á söguöld og þjóðveldistíma, en á 16. öld mun svínarækt leggjast niður. Sá hluti mólags, er svínabeinin dreifðust um, myndast því líklega fyrir 16. öld. Nokkuð fannst geirfuglsbeina, en sá fugl deyr út 1844, þá löngu sjaldgæfur. Af rostungsbeinunum verður næsta lítið ályktað um aldur. Rostungar munu hafa verið al- gengir í upphafi byggðar, en fækkaði snemma, bæði sökum dráps og vegna þess, hve mannfælnir þeir eru. En Reykvíkingar hafa þó getað komizt í færi við einstök dýr lengi fram eftir. Bein allra þess- ara þriggja tegunda setja fornan svip á lagið, og er það sennilega til orðið fyrir lok miðalda. Eins og að framan getur, fannst mikið af kurluðu limi, spýtum og spónum í ofangreindu lagi, en mest þó neðst og við suðvestur- horn grunnsins. Á þessum bletti safnaði Finnur Guðmundsson kurli og spónum. Úr safni hans fengum við einn höggspón árið 1967 og sendum eðlisfræðistofnun háskólans í Uppsölum til aldursgreining- ar eftir geislakolsaðferð. Þar ákvarðaði dr. Ingrid Olsson aldur spónsins, en hann ber greiningarnúmerið U 2082. Aldur reyndist: 1140 ± 70 B. P., þ. e. 810 e. Kr. Samkvæmt alþjóðareglu liggja skil við árið 1950 og helmingatími 5570 ár. Sé miðað við 5730 ár, reynist aldur hins vegar: 1170 ± 70 B>. P., þ. e. 780 e. Kr.