ENN EIN MYND AF JÖRUNDI í Árbók 1967 var gerð nokk- ur grein fyrir tveimur mynd- um af Jörundi hundadagakóngi (J^rgen Jiirgensen). Nú hefur safnið fengið vitn- eskju um eina mynd enn, sem talin er vera af Jörundi. Arthur Vaag, læknir í Mando á Jótlandi, veitti þær upplýsing- ar í bréfi til safnsins, dags. 28. okt. 1968, að í bók eftir Bent Rosenkilde Nielsen, Danske Pio- nerer paa Stillehavet, Koben- havn 1944, bls. 129, væri birt mynd af Jiirgensen. Um þetta var okkur áður ókunnugt. Höf- undur bókarinnar er nú látinn, og hefur Vaag ekki tekizt enn sem komið er að afla neinnar vitneskju um uppruna myndar- innar. Þjóðminjasafnið hefur nú eignazt kopíu eftir þessari prentuðu mynd. Myndin virðist prentuð eftir pennateikningu og minna andlitsdrættir nokkuð á málverk Eckersbergs. Prentmyndin er þó af eldri manni en málverkið og búningur og hárgreiðsla öðruvísi, svo að ekki sýnast vera bein tengsl milli þessara tveggja mynda. Ekkert mælir á móti því, að báðar myndirnar geti verið af sama manni á mismunandi aldursskeiði. H. J. J. Jergen Júrgensen.