TVÆR DOKTORSRITGERÐIR 125 mjög góðan myndapappír, og af hálfu höfundar er það til fyrirmynd- ar, að góð registur fylgja. Einkum er það mjög þægilegt, að registur er yfir alla hluti, sem teknir eru á einhvern hátt með í rannsókninni, því að vafalaust þarf oft á því að halda að finna, hvar vikið er að einhverjum tilteknum hlut, og er manni þá spöruð sú leit, sem margir kannast við að gera þarf í slíkum yfirlitsverkum, ef þau eru registurs- laus. Meðferð íslenzkra nafna er framúrskarandi og prófarkalestur lýtalaus. AUt þetta ber að virða. Bók þessi fæst við jurtaskreytið í íslenzkum tréskurði eins og titill hennar bendir til. Samt er hún í reynd saga íslenzks tréskurðar yfir- leitt, þar sem jurtaskreytið er svo yfirgnæfandi í þessari listgrein. Frú Mageroy hefur hér lagt til atlögu við risastórt verkefni og lagt grundvöll að allri framhaldsrannsókn á þessu sviði. Bók hennar sýnir Ijóslega, hve tréskurðurinn var merkilegur þáttur í íslenzkri alþýðu- menningu, og leiðir hann til þess vegs, sem honum ber. Þetta er mikið framlag til íslenzkrar menningarsögu, og er bæði ljúft og skylt að þakka þessari útlendu konu þetta mikla framtak hennar og þá alúð, sem hún hefur lagt við verk sitt. Öllum öðrum fremur munu íslenzkir safnmenn verða henni þakklátir. Það hefur ekki fram að þessu verið árennilegt að koma ókunnugur að hinum miklu hrúgum ís- lenzks tréskurðar og eiga áð svara með rökum til hvaða tíma telja beri hvern einstakan hlut. Eftir sem áður mun það geta verið vand- kvæðum bundið að vera viss í sinni sök. En í flestum tilvikum mun þetta rit greiða veginn, það mun verða notað sem handbók safnmanna og hjálpa þeim til að koma lögum yfir efnið og fá þeim í hendur það orðakerfi, sem nauðsynlegt er til þess að hægt sé að tala um það af viti. Ég á von á því, áð margar sérrannsóknir eigi eftir að spretta af þessu verki, þar sem fyrir verða tekin einstök atriði og grafizt dýpra eftir þeim en hægt hefur verið í svo víðfeðmu yfirliti. En allt mun það verða gert í framhaldi af þessu verki og svo sem á bak- grunni þess.