KIRKJA HAMBORGARMANNA 127 Elzta heimild um kirkju íslandsfaranna í Hamborg er frá 1534. í eftirfarandi innfærslu mun vera vikið að frumsmíði kirkjunnar: Ith. noch hebbe ick uth gheven Frerick dem tymmerman vor dat hus tho makenn, dat in yslant quam in de Hanenforde summa 50 mk", því að á næstu síðu reikningsbókarinnar er færð greiðsla handa smed" fyrir allmörg par henggen" fyrir slot" á Karken in ys- lant". Hinn 3. marz 1539 fær Jakobcke Klygebarch 3 mörk og 6 skildinga fyrir 34 borð tho der karcken in ysselant." I sama mánuði eru honum einnig fengnir peningar fyrir nagla. 1541 fær Peter nokkur Betken eitt mark fyrir 8 álnir lérefts, og vísað er í því sambandi til kirkj- unnar á Islandi. Árið 1543 getur að lesa: Item dem koeppersleger geven vor kopper und nagel 16 mk 6 sk to der karcken in isselant in der Hanenforde". Á þessu ári mun hafa verið sett dugandi eirþak á kirkjuna. 1563 segir svo: weiniger awerst 12 f 1. so den timmerluden so de karck beteret, tho lohne gegeven syn scholen", og enn fremur: darna awerst tho behof der karck 4 sk vor nagele utgegeven". Árið 1581 afhendir Jasper van Doren, nýkominn frá Islandi, bræðralaginu 160 fiska,, de van dat olde Holt von der karcken gekofft was". 1586 segir svo: Hirnan Jacob Hambrock gegeven 6 fl. vor ene Dele, de thor Karcken is gekamen". Sá verzlunarmáti virðist hafa verið tíðkanlegur, að gamalt timbur frá kirkjunni hafi verið selt á íslandi, að því er virðist inn á reikning kaupmanna, fyrir vörur sem landsmenn höfðu að bjóða (fisk og sauði). 1589 afhenda Otten Ebelinck og Mathias Poppe sjóði bræðralagsins verð þriggja sauða, sem þeir höfðu keypt fyrir gamalt timbur frá kirkjunni. Af þeim pen- ingum fær timbursmiður nokkur 12 sk sem verkalaun og 13 sk fyrir nagla og timbur. Á sama hátt voru peningar teknir úr sjóði bræðralagsins til þess að kaupa kirkjugripi og messuskrúða. Sú skoðun stenzt naumast, að ornamenta og instrumenta St. Önnu-kapellunnar við Péturskirkjuna í Hamborg, sem íslandsfarar höfðu á sínum vegum til 1535, hafi verið tekin til þessara þarfa. 1536 var búnaður hennar mestallur seldur á íslandi gegn fiski. 1538 er lögð fram peningaupphæð til þess að út- vega skírnarsá. Og á sama ári fær Her Jochym der Hanenforder kalpelane" 5 mk 3 sk fyrir síðan kjól (hempu). Hinn 12. marz 1539 eru tvær upphæðir greiddar fyrir að steypa klukku. 1540 fær einn Prekant" ut bywel Dyrck Wassmers 2 mörk fyrir parmenten sanckbock" og enn eitt mark fyrir bede boke" (bænabók). Árið 1541 eru kennimanni einum greiddir 3 skildingar eftir ávísun Goderth