128 ÁRBÓK FORNLEIFAFELAGSINS Schroders to pappyr det he to eyn myssebocke hebbe wolde in Yslant". 1544 fær Harme Schrynz eitt mark fyrir parmynten bock", sem hann hefur sennilega skrifað handa kirkjunni. 1549 gefur Clawes Nyebecke f járupphæð fyrir messuskrúða. íslenzkir prestar bera enn á vorum dögum við ýmis tækifæri skrautlegan skrúða, sem minnir á tímana fyrir siðaskipti. Athugasemd frá 1539 fræðir okkur um að kirkjan hafi átt sitt innsigli. Item noch gegeven Hynryck Horman iy% mk vor 1 segele tho der karcken". Svo sem margar innfærslur sýna ljóslega, voru greiðslur vegna guðshúsa bræðralagsins inntar af hendi að tilvísun öldurmannsins eða af formanni bræðralagsins. Þeir kennimenn frá Hamborg, sem þjónuðu á íslandi, hafa komið ár hvert snemma vors í byrjun kauptíðar inn á Faxaflóa, og þeir hafa verið í landinu þangað til síðustu skipin léttu akkerum til þess að sigla til Hamborgar um haustið. Þar eð sú venja komst á upp úr 1595, að prestar, sem heim komu, greiddu obulus sinn í sjóð bræðra- lagsins, er okkur kunnugt, að prestarnir frá Hanenforde" fóru venjulega heim með skipi Joachims von Haren. Samkvæmt samningi, sem nú er í ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn, hafði hann höfnina Hafnarfjörð á leigu um árabil ásamt Hans Holdtgreve. Það var Kristján 4. Danakonungur, sem leigði höfnina. Fram til 1542 voru prestarnir í Hafnarfirði nefndir Kalpelan, Kappelan eða Kaplan (kaþólskir aðstoðarprestar). Fyrsti prestur- inn, sem oss er kunnugt um við Hamborgarakirkjuna í Hafnarfirði er Jochhym der Hanenforder Kalpelane". Árið 1538 fær hann greiðslu fyrir hempu. 1541 er hann nefndur Her Jochhym der olde kapplan". Honum er greiddur styrkur til 20 vikna, 2 skildingar á viku. Sama árið, 1541, er annar prestur, Her Korth de kappelan", nefndur. Árið eftir, 1542, sjáum við í reikningum bræðralagsins, að Her Hynrick Konge de kaplan up Islant" fær 10 mörk. Hinn 26. ágúst 1552 sést þessi athugasemd: Item Johannes Bramstede de predekante in der Hanenforde geven ut bevel der olderlude 8 mk". Án þess að nöfn séu nefnd er talinn upp prekant" 1540, Her to Hanenforde" 1543, sýnilega einnig kennimaður, og 1546 Pastor in de Hannenforde", sem allir taka við þóknun úr sjóði bræðralagsins. Auk þessa eru nefndir sem prestar: 1582 séra Frans Keiser, 1590 Jiirgen Wunderkick, 1591 Samuel Kreye, 1592 og 1595 Johann(es) Fabricius, 1593 og 1594 Magister Lucas von Collen, kosinn aðal- prestur við Jakobskirkjuna í Hamborg 1595, 1596 séra Johan Schöne- felt og 1597 séra Warnerus Meyer. Ætla verður, að þessir menn hafi allir starfað við kirkjuna í Hafnarfirði. Um eftirtalda presta og pré-