KIRKJA HAMBORGARMANNA 129 dikara vitum við eftir upplýsingum um brottsiglingarhöfnina, að þeir komu allir að einum undanteknum frá Hafnarfirði: 1599 prédik- arinn Andreas (Antwan) Hoffmann, 1600 og 1601 séra Johann Fabritius, 1601 auk þess prédikarinn Nicolaus Stuur úr Kibbelwick (Keflavík), en 1602 er hann aftur nefndur í gjafabókum St. Önnu- bræðralagsins og er þá að snúa heim frá Hafnarfirði. Ekkert er vitað um þau embættisstörf, sem þessir kennimenn unnu í Hafnarfirði. Einungis vitum við um prédikarann Andreas (Antwan) Hoffmann, að hann jafnaði missætti milli tveggja Hamborgarkaup- manna árið 1599. Auk venjulegrar guðsþjónustu fyrir kaupmennina og skipstjórana og þjónustulið þeirra, hafa þeir sjálfsagt jarðsungið þá Þjóðverja, sem í Hafnarfirði dóu. Stundum hafa ef til vill ein- hverjir Islendingar, sem búsettir voru í Hafnarfirði, sótt þessar guðsþjónustur, því að þá var engin kirkja í Hafnarfirði. Tekjum til byggingar og viðhalds kirkjunnar var alltaf haldið áð- greindum frá gjöfum handa þurfalingum, ekkjum og sjúklingum, og yfirleitt voru þær bókaðar sérstaklega. Fjárframlögin voru ýmist í peningum eða fríðu. Gjöld í fiski eru ýmist kölluð Karkenfisch" (kirkjufiskur) eða Suntge-Anna fiskur, en af seinna nafninu verður ekki séð, hvort átt er við fisk handa fátækum eða kirkjunni. Ef til vill bendir þó þessi nafngift til þess, að kaupmannakirkja sú, sem Sunte-Annen Broderschop der Islandesfahrer" hélt uppi í Hanen- forde" hafi verið helguð heilagri Önnu. Og kapellan í Péturskirkjunni í Hamborg hafði sama nafn. I einu tilviki sýna heimildir, að kirkjan í Hafnarfirði var einnig notuð sem samkomuhús éða samningasalur. Vegna deilna milli emb- ættismanna Danakonungs og Hamborgara út af verzlunarfyrirkomu- lagi og vetrarsetu kaupmanna á Islandi kom fógetinn Lárenzíus Múle í kirkjuna vorið 1548 og las yfir Hamborgurum þeim, sem þar voru saman komnir, alla dóma og konungsbréf, sem deiluna varðaði. Hann brýndi fyrir viðstöddum að sniðganga ekki þessi fyrirmæli. Með árinu 1603 rann út leigumáli Hamborgarkaupmannanna Curt Bleke, Hermann Kopmann og Ditrich Bermann um Hafnarfjarðar- höfn. Samtímis tók konungur fyrir Islandsferðir og Islandsverzlun Þjóðverja. Með þessu var snöggur endir bundinn á framlög til kirkj- unnar. Upp frá því er aðeins greint frá gjöfum til fátæklinga bræðra- lagsins, sem gefnar voru af skipstjórum á þeim skipum, sem Danir fermdu til íslandsferðar. Söguritari Hafnarfjarðar, Sigurður Skúla- son, segir, að 14. október 1603 hafi staðurinn komizt á hendur danskra einokunarkaupmanna frá Kaupmannahöfn, Málmey og Helsingjaeyri. 9