KRISTJÁN ELDJÁRN FORNLEIFAFUNDUR 1 YTRI-FAGRADAL Hinn 2. júlí 1965 hitti ég í Grafarholti aldraðan mann, Kristján Haraldsson, sem áður hafði verið bóndi á Skarðsströnd í Dalasýslu. Hann afhenti mér allmiklar leifar af fornum kambi og kambslíðrum eða kambhylki, enn fremur fornlegt hnífsblað úr járni, einnig sýnis- horn af viðarkolasalla úr gólfskán, að því er hann taldi. Kvað hann allt þetta hafa fundizt í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd árið áður, og hefði húsfreyja þar, Borghildur Guðjónsdóttir, fundið það í jarðýtu- flagi. Taldi Kristján, sem er glöggur fróðleiksmaður, að þarna væri ef til vill margt að finna. Ég talaði við Borghildi í síma og bað hana að sjá til þess, að ekkert yrði hreyft á staðnum frekar en orðið var, og lofaði hún því. Fornleifarnar voru færðar inn í dagbók safnsins þennan sama dag. Fornleifar þessar og frásögnin af fundaratvikum þótti mér svo for- vitnilegt, áð ærin ástæða væri til þess að gefa því nánari gaum við tækifæri og freista þess þá meðal annars að finna fleiri brot úr kamb- inum góða. Gerði ég ferð mína vestur um haustið og var við rann- sókn í Ytri-Fagradal 4. og 5. sept., í björtu veðri og köldu, en taldi þá ekki eftir atvikum þörf á frekari rannsókn. Bæjarlækurinn í Ytri-Fagradal er vatnsmikill og rennur rétt utan við bæinn, kahaður Fagradalsgil, og fellur niður túnið í mörgum bugðum og sveigum í alldjúpu gili. Verða víða grasigrónir snotrir hvammar eða hvöpp við lækinn. Gamla túnið var mest eða allt innan vi'ð lækinn, og sér þar enn parta af allmiklum harðgrónum túngarði. Niður með læknum að innan eru mikil f járhús, en skammt fyrir ofan þau er flöt fit við lækinn, og sagði Kristján Haraldsson, að þetta hefði heitið Blóðakur. Hefði þar verið sporöskjulagað gerði eða girð- ing, en nú (1965) er þar kartöflugarður. Hafði Kristján það eftir önnu Friðriksdóttur, húsfreyju í Ytri-Fagradal (konu Þorsteins Brynjólfssonar), að þarna væri Blóðakur, en hins vegar hefði Herdís