132 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 1. mynd. Fremst öskuhaugurinn, í baksýn brinn í Innri-Fagradal. Jónsdóttir, kona Sturlaugs Tómassonar í Ytri-Fagradal, talið, að Blóðakur héti grasigróið hvapp eða hvammur svo sem 30 m ofar við lækinn, en það var einmitt í því hvappi, sem fornleifarnar fundust. Skal ósagt látið, hvort réttara er, enda kemur þetta nafn fornleifun- um ekkert við. Einhver blettur þarna við lækinn virðist sýnilega hafa borið þetta einkennilega nafn. Hvappið, sem fornleifarnar fundust í, er um 70 m niður frá bænum. Er aflíðandi brekka frá túninu niður í hvappið. Niður í þessa brekku hafði verið ýtt með jarðýtu, eins og áður segir, og kom þar þá í Ijós mannvistarlag, og í því, sem upp hafði verið rótað, fann Borghildur fornleifar þær, sem Kristján Haraldsson afhenti. Þegar farið var að grafa á þessum stað, sást fljótlega, að allmikið var óhreyft af mann- vistarlaginu, þótt nokkuð af því hefði hreyfzt úr stað. Lagið lá ni'ður í brekkuna og hallaði allmikið, og undir því var mjög óslétt eða þýft. Varð brátt alveg augljóst, að þetta var öskuhaugur, sem þarna hafði