134 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS 2. mynd. Brot af Tcambi og heil kambsUÖwr frá Ytri-Fagradal. hvaö brotið er af endum sumra kinnanna og annað endastykkið er skaddað. En slíður þessi eru gerð á sama hátt og öll forn kambslíður, sem mér er kunnugt um, úr 6 stykkjum, sem eru tvö endastykki og fjórar kinnar aflangar, tvær á hvorri hlið, og eru þær festar við endastykkin með járnnöglum tvær og tvær. Á miðju kinnanna eru slíðrin skreytt með mörgum röðum depilhringa upp og ofan, ekki alveg reglulega, enn fremur strikum fram með brúnum kinnanna og þéttum þverstrikum á endum þeirra, umhverfis naglana. Mest lengd slíðranna hefur verið 14,5 sm, en nú vantar aðeins á yzta nef annars endastykkisins. Gripur þessi, kamburinn með slíðrunum, er af áður vel þekktri ger'ð, sem hefur verið í tízku á víkingaöld og eitthvað fram á miðaldir. Víða hafa slíkir gripir fundizt, en þetta er sá fjórði sem finnst hér á landi sinnar tegundar. Áður hafði fundizt mjög vandað eintak af kambi með slíðrum í kumli á Hafurbjarnarstöðum, en tvö óvandaðri fundust í kumli í Vatnsdal í Barðastrandarsýslu. Kambslíðrin frá Ytri-Fagradal eru að öllu l'eyti af þessum flokki, þótt skrautverk sé dálítið frábrugðið. En þau hafa það til síns ágætis, að þau eru heillegri miklu en öll hin kambslíðrin og góður safngripur. Um kamba og kambslíður á Islandi sjá Árbók 194348, bls. 115 116, Arbók 1966, bls. 2325; enn fr. Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Islandi, bls. 337 o. áfr. Um fornaldar- og miðaldakamba almennt er margt til á fræðibók-