MINNZT TVEGGJA MANNA 139 þau smíðahandbragð hans, en auk þess smíðaði hann hillur og stalla og palla og hvað annað smálegt, sem á þarf áð halda, þegar koma þarf safni í sýningarhæft lag. Þarna á Tryggvi mörg handtök, sem lítið ber á, en þó ber að meta og minnast, þegar saga verður rakin. Eftir að Tryggvi hvarf frá Þjóðminjasafninu í ársbyrjun 1960 mun hann lítið hafa stundað smíðar, en sneri sér því meir að hugðar- máli sínu, ljósmyndagerð. Við þá iðju vann hann löngum í Náttúru- gripasafninu og vann sér þar traust og virðingu fyrir störf sín í þágu þeirrar stofnunar. Tryggvi Samúelsson var um margt sér- stæður persónuleiki, sem gleymist ekki þeim sem honum kynntust. K. E.