SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1968 Helztu breytingar á starfsliði safnsins á árinu voru þær, að dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður var kjörinn forseti Islands hinn 30. júní og lét af embætti þjóðminjavarðar hinn 31. júlí. Var Þór Magnússon safnvör'ður settur forstöðumaður safnsins frá 1. ágúst og síðan settur þjóðminjavörður frá 1. september. Staða safnvarðar við þjóðháttadeild var auglýst laus um haustið, og barst ein umsókn um hana, frá Árna Björnssyni cand. mag. Til'- kynnti menntamálaráðuneytið í desember, að hann yrði settur safn- vörður við þjóðháttadeild frá 1. janúar 1969. Elsa E. Guðjónsson safnvörður var sett í fullt starf frá 1. janúar 1968, en hafði áður verið í hálfu starfi. Iris Valberg, bókari safnsins, sagði upp starfi sínu frá 1. febrúar, og í stað hennar var ráðin Hrönn Sigurgeirsdóttir. Gegndi hún starfinu til 15. desember, en fékk þá orlof um þriggja mánaða skeið og var Regína Birkis ráðin bókari þann tíma. Lúðvík Kristjánsson var enn sem undanfarin ár á launum hjá þjóðháttadeild við samningu ritverks síns um íslenzka sjávarhætti, svo sem getið hefur verið í skýrslum undanfarinna ára. Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi vann hér eins og undanfarin ár nokkra mánuði fyrri hluta ársins að viðger'ðum og aðhlynningu safngripa, enda hefur safnið engum öðrum viðgerðarmanni á að skipa til slíkra verka. Svavar Sigmundsson cand. mag. vann að endurskoðun örnefna- safnsins í upphafi ársins og yfir sumartímann, en nokkurn hluta ársins dvaldist hann í Svíþjóð og kynnti sér örnefnasöfn og örnefna- söfnun. Um haustið tók hann við kennslu við Háskóla íslands, og varð þá hlé á vinnu hans í safninu, en þó dvaldist hann hér tíma og tíma við að ganga frá ófullger'ðum örnefnaskrám. Þórður Tómasson safnvörður í Skógum vann sem áður nokkurn tíma á vegum þjóðháttadeildar og örnefnasafnsins, svo sem að verð- ur vikið síðar.