142 ÁRBÓK FORNLEIFAFELAGSINS sem vefnaðarkyns eru. Hefur hún stöðugt unnið að skrásetn- ingu þeirra og rannsóknum viðvíkjandi þeim, ekki sízt rannsóknum á gömlum búningum, bæ'ði út frá efniviði safnsins og eftir rituðum heimildum. Hefur frú Elsa flutt nokkur erindi í félagasamtökum um rannsóknir sínar og athuganir og auk þess rannsakað nokkur gömul altarisklæði í kirkjum. Frú Elsa annast rekstur Safnbúðarinnar, eins og áður hefur verið skýrt frá, en þar eru seld póstkort og litmyndir af safngripum og nokkrir minjagripir, sem fyrirtækið Islenzkir minjagripir gerir í samráði við safnið, svo sem skýrt var frá í síðustu safnskýrslu. Mæl- ast þeir vel fyrir, og er talsverð sala á gripum þessum og kortum, einkum til ferðamanna. Hefur Safnbúðin skilað nokkrum hagnaði á árinu auk þess sem birg'ðir hennar hafa aukizt að mun. Gísli Gestsson hefur sem fyrr umsjón með sýningargripum safns- ins, auk þess sem hann er aðalljósmyndari safnsins, en ljósmynda- vinna er orðin allmikil og tímafrek, bæði í þágu safnsins sjálfs og ekki sízt vegna pantana erlendis og innanlands frá á myndum af gripum í safninu og byggingum og fornminjum í umsjá þess. Þetta er þáttur, sem safnið telur sér skylt að rækja, enda er einnig nauðsyn að hafa tiltækar sem beztar og fullkomnastar myndir í safninu af öllu því, sem snertir starfssvið þess. Þorkell Grímsson vann á árinu aðallega að skráningu safngripa, eins og undanfarin ár, og hefur hann nú skráð gripi fram til ársins 1966. Safnmenn sáu um nokkra sjónvarpsþætti um fornminjar og forn- gripi, á sama hátt og árið áður. Voru þættirnir undir umsjá þjóð- minjavarðar, en þeir voru þessir: Þór Magnússon: Beztar ástir greiðir friðarengill (um fingrarímið gamla). 1. janúar. Gestur þáttarins Sigurþór Runólfsson. Hörður Ágústsson: Þá Gaukur bjó í Stöng (lýsing bæjarins í Stöng). 16. febrúar. Dr. Kristján Eldjárn: Tóbakka vilda eg dýrlegt drekka (um reyk- tóbaksnotkun fyrrum). 15. marz. Þór Magnússon: Handaverk herra Guðbrands (um hluti tengda Guð- brandi biskupi Þorlákssyni). 14. apríl. Hör&ur Ágústsson: Brynjólfskirkja í Skálholti. 31. maí. Þór Magnússon: Vertu nú minni hvílu hjá (um rúmfjalir og út- skurð á þeim.) 27. sept.