SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1968 143 Elsa E. Guðjónsson: Með silfurbjai'ta nál (um gamla íslenzka kross- sauminn). 22. okt. Dr. Kristján Eldjárn: Grænlandssýningin. 19. nóv. Þór Magnússon: Nóttin var sú ágæt ein (um helgimyndir tengdar jólunum). 25. des. Þessir þættir mælast mjög vel fyrir, enda er reynt að setja efnið fram við hæfi almennings hverju sinni. Greinilegt er, að ýmiss kon- ar þjóðlegt efni er jafnan kærkomið hjá fólki, en í þáttunum hefur jafnframt verið reynt að sýna hluti sem ekki eru almennt til sýnis í safninu og skýra sögu þeirra og eðli, eða sýna horfna hluti og vinnubrögð, sem leita verður annarra heimilda um. Á árinu var lokið vi'ð að breyta geymslunum á austanverðri neðstu hæð hússins í vinnustofur, og fengust þar þrjú prýðileg vinnuher- bergi fyrir safnverði. Voru keypt þangað ný skrifborð, og rættist með þessari ráðstöfun mjög úr vinnuaðstöðu safnvarðanna, sem hefur lengi verið slæm vegna skorts á húsrými. Herbergi þau í vesturhluta hússins, sem Eðlisfræðistofnunin hafði síðast til um- ráða, voru tekin undir geymslur og fengnar stálhillur í eitt þeirra til að geyma á hluti. Eru geymsluhlutir nú mun aðgengilegri en áður, en samt mun þessi ráðstöfun ekki nægja nema um skamma hríð, og mun innan nokkurra ára sækja í sama horfið með skort á geymslum fyrir safngripi. Mjög stóra hluti er vart hægt að geyma í húsinu, og þyrfti að afla geymslu annars staðar fyrir slíka hluti. Til dæmis er ekki hægt að taka fleiri báta til varðveizlu eins og sakir standa vegna þess, að skýli eru engin yfir þá. 1 vesturhluta hússins á neðstu hæð, þar sem áður hafði verið Eðlisfræðistofnunin, var innréttaður dálítill eldtraustur klefi sem geymsla fyrir skjöT og annað dýrmætt, svo sem kvikmyndafilmur, segulbönd og hljómplötur. Við árslok var hún þó ekki komin í það lag, sem þyrfti, og skortir þar enn á, að lækka þarf hitastigið í klefanum ef vel ætti að vera, en til þess þarf allmikinn útbúnað, sem er alldýr og erfitt fyrir að koma. Þá var íbúð þjóðminjavarðar máluð og lagfærð Iítils háttar, og nokkuð var einnig málað í sýningarsölum. Um vorið voru fengnir menn frá eldvarnaeftirlitinu til að skoða allt húsið með tilliti til eldhættu. Reynt hefur verið á undanförnum árum að láta fylgjast vel með öllum rafleiðslum, svo að ekki staf- aði frá þeim hætta, en kröfur allar um eldvarnaeftirlit eru nú meiri