146 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Eins og undanfarin ár hafði Hjörleifur Sigurðsson listmálari á hendi leiðsögn um safnið fyrir gagnfræðaskólanemendur úr Reykja- vík og nágrenni, og skoðuðu 1266 nemendur safnið undir leiðsögu hans. Ýmsir handavinnukennarar, bæði hannyrðakennarar og teikni- kennarar, hafa í auknum mæli komið í safnið hin síðari ár með nem- endur sína til að sækja fyrirmyndir þangað, og er þetta nú að heita má orðinn fastur liður í fyrirgreiðslu safnsins, þótt þáð sjái að vísu ekki sjálft um leiðbeiningar á þessu sviði. Sé gert ráð fyrir, að um 3000 manns skoði safnið utan venjulegs sýningartíma, sem mun ekki ofmælt, mun láta nærri, að heildargesta- talan verði um 48.000. Sjálft hafði safnið eina sérsýningu á árinu, og bar hún nafnið Grænland hið forna, og var það hin mikla og vinsæla sýning danska Þjóðminjasafnsins, Erik den R0des Gr^nland, sem það hafði þegar á síðastliðnu ári lofað að lána hingað til lands, eins og um getur í síð- ustu ársskýrslu. Var hún fyrst sýnd hér utan Danmerkur, en búizt var við, að hún yrði síðan lánuð til fleiri landa, og héðan var hún send til Noregs. Sýningin var haldin í Bogasalnum og enn fremur öllum innsta hluta anddyrisins, og var þiljað fyrir framan hann og svo allt umhverfis til þess að fá veggrými. Á sýningunni voru margs konar hlutir, sem fundizt hafa í norrænu byggðunum á Grænlandi, svo og stórar ljósmyndir og skýringarmyndir, og allt til samans var þetta mjög vel fallið til þess að varpa ljósi yfir daglegt líf og háttu manna á Grænlandi á miðöldum og endalok byggðarinnar þar. Sýn- ingin var opnuð 10. febrúar og stóð til 3. marz. Við opnun sýningar- innar voru forseti Islands, ráðherrar og sendiherrar og f jöldi annarra boðsgesta. Þjóðminjavör'ður flutti ávarp, en menntamálaráðherra opn- aði sýninguna. Safnið bauð Knud J. Krogh arkitekt að vera við opnun sýningarinnar, og hjálpaði hann allmikið til við að leggja síðustu hönd á hana. Einnig flutti hann ávarp við opnunina, en hinn 12. febr. flutti hann opinbert erindi um Grænlandsrannsóknir. Erindið var flutt í Háskólanum, en á vegum Þjóðminjasafnsins. Grænlandssýningin er myndarlegasta sérsýning, sem safnið hefur haldið fram að þessu. Hún vakti mikla athygli og gestafjöldi var óvenjulega mikill. Sérstakar þakkir ber áð færa Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn fyrir þá miklu velvild að lána þessa sýningu hingað, og eiga yfirvöld þess safns og margir starfsmenn þar óskiptan hlut að máli. Safnið veitti sem oft áður ýmiss konar fyrirgreiðslu með lán á hlutum á sýningar innan lands og utan. Allmargt gripa var lánað á