150 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Kristín Guðmundsdóttir, E; dr. Haraldur Matthíasson, Laugarvatni; Svavar Sigmundsson, R; Jónas Helgason, Grænavatni, S.-Þing.; Vivian Goodwin, Kaliforníu; Eiríkur Benedikz sendiráðunautur, London; Ragna Stefánsdóttir, R; Þorbjörg R. Pálsdóttir, Gilsá, S.- Múl.; Leó Guðlaugsson, Kóp.; Arthur Vaag, Rípum, Danmörku; Guð- laug Stefánsdóttir, Strönd, V.-Skaft.; Ingólfur Davíðsson, R; Ólafur Þorvaldsson, R; Elsa Margrét Þórsdóttir, R; Gunnar Hjaltason, Hafn- arf.; Hólmfríður R. Árnadóttir, R; Dr. John Fiske, R; Pétur Guð- mundsson frá Ófeigsf., Kóp.; Sigríður Haraldsdóttir, R; Gísli Gests- son, R; Ráðherrabústaðurinn, R; Landsbókasafn, R; Guðbrandur Magnússon, R; Helga Kristjánsdóttir, Silfrastöðum, Skag.; Skúli Helgason, R; Þjóðskjalasafnið, R; Guðrún Sigurðardóttir, R; María Guðmundsdóttir, R; Þórður Þórðarson frá Hvammi, Eyf.; Seðlabanki íslands, R; Egill Ólafsson, Hnjóti, V.-Barð.; Gísli Sigurðsson, Kefla- vík; Jón Guðmundsson, Sveinseyri, V.-ís.; Jóhann Pálsson, Skeggja- stöðum, N.-Múl.; dr. Kristján Eldjárn, Bessastöðum; Þorsteinn Thor- arensen, R. Þjóðháttadeild. Á árinu var aðeins send út ein spurningaskrá frá þjóðháttadeild, og er það vegna þeirra breytinga á starfsliði safnsins, sem áður hefur verið ger'ð grein fyrir. Spurningaskrá sú, sem send var út, Ull og tó- vinna IV, f jallar um ýmsar fínni gerðir vefnaðar, og er liður í heim- ildasöfnun um tóvinnuna, sem hófst árið 1965 með útsendingu spurn- ingaskrár um rúning. Er nú senn lokið þessum þætti, en þó er eftir að senda út skrá um prjón og fatasaum. Að öðru leyti hefur efnissöfnun verið háttað á sama hátt og áður. Þórður Tómasson hefur dvalizt tíma og tíma í safninu við störf í þágu deildarinnar, og einnig hefur hann farið um meðal fólks bæ'ði hér í borginni og á Suðurlandi og aflað heimilda með persónulegum viðtölum við fólk. Hefur þjóðháttasafnið þannig auðgazt allmikið af heimildum, bæði skráðum og á segulböndum. Á árinu voru færðar 100 færslur í aðfangabók deildarinnar, og var tala skráðra heimilda við áramót alls 1485 nr. Eru þetta bæ'ði svör við ákveðnum spurningaskrám og annað efni, og eru oft heilar syrpur í hverju númeri. Starfsskilyrði við deildina bötnuðu að mun, er hún fluttist í nýjar vistarverur á neðstu hæð hússins. Þar er góð vinnuaðstaða, enda hægt að hafa sjálft heimildasafnið í sama herbergi og unnið er í, og er það til mikils hagræðis.