SKÝRSLA UM ÞJÖÐMINJASAFNIÐ 1968 151 Eins og fyrr segir hefur Árni Björnsson verið settur safnvörður við þjóðháttadeildina frá 1. janúar 1969. Munu því störf við deildina hefjast af fullum krafti að nýju upp úr áramótum. Þess má og geta, að Hallfreður Örn Eiríksson cand. mag. hefur að undanförnu haft nokkra starfsaðstöðu í húsakynnum Þjóðminjasafns- ins, en annars vinnur hann söfnunarstarf sitt einvörðungu á vegum Handritastofnunar íslands nú orðið. Þessi fyrirgreiðsla verður þó aðeins þar til hið nýja hús Handritastofnunar, Árnagarður, verður tekið í notkun, sem væntanlega verður á komandi ári. Örnefnasöfnun. Örnefnasöfnun var haldið áfram með svipuðum hætti og áður, en um hana skal vísað til skýrslu Svavars Sígmundssonar cand. mag., sem f er hér á ef tir: Framan af ári var enginn fastur maður við örnefnasöfnun, en haldið var áfram söfnun í einstökum hreppum. Eiríkur Einarsson hélt áfram söfnun í Ölfusi utanverðu, og Þórður Jóhannesson kennari hóf að safna í austanverðri sveitinni. Ingólfur Einarsson hélt áfram endurskoðun í Landsveit. Páll H. Jónsson end- urskoðaði skrár Ara Gíslasonar um Reykjadal í S-Þing., og varð því verki ekki lokið. Guðlaugur R. Guðmundsson hélt áfram endurskoðun í Reykjavík á vegum borgaryfirvalda. Gísli Sigurðsson í Hafnarfirði safnaði örnefnum í Selvogi og lauk þeirri söfnun. Sumarmánuðina júníágúst var undirritaður í starfi hjá safninu, og var þá m. a. unnið að endurskoðun í S.-Þing. og farið um Tjörnes og Reykjahverfi og víðar um sýsluna í því skyni. Er endurskoðun lokið í sýslunni að undanteknum fáum bæjum í Reykjadal. Þá voru og skráð mið á Skjálfanda. Haldið var áfram endurskoð- un á Kjalarnesi og í Mosfellssveit, einnig í Krísuvík, en þar voru ör- nefni færð á kort með aðstoð Ólafs Þorvaldssonar. Sigurjón Þ. Erlingsson lauk söfnun í Gaulverjabæjarhreppi. Auk þessa hafa stöku bæir verið endurskoðáðir hér og þar, þegar tækifæri hafa gefizt. Gísli Sigurðsson á Dröngum skilaði safni um nokkrar eyjar úti fyrir Skógarströnd. Á vegum safnsins var einnig unnið að vélritun á örnefnaskrám Stefáns Einarssonar úr Eiðaþinghá og Skriðdal, fyrir Sögufélag Austfirðinga með endurskoðun fyrir augum. Einnig var vélritað safn úr Borgarfirði eystra í sama skyni." Svavar Sigmundsson.