152 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Viðhald gamalla bygginga. Á öndverðu árinu var endanlega gengið frá kaupum á Vi'ðeyjar- stofu og um 11,8 hektara landi umhverfis húsin og niður að sjó. Kaup- verð var ákveðið með yfirmati 5,8 milljónir, en árið 1961 hafði ríkið eignazt Viðeyjarkirkju og hefur verið gert rækilega við hana, eins og skýrt hefur verið frá í fyrri ársskýrslu. Viðeyjarstofa er mjög illa farin og þarfnast rækilegrar viðgerðar og endurbóta. Einkum eru veggir sprungnir, gluggar og hurðir að miklu leyti gerónýtt, gólf skemmd og innra smíð sömuleiðis, en á und- anförnum árum hafa skemmdarvargar lagt leið sína út í eyjuna og gert töluverð spjöll. Þó er þak hússins að mestu óskemmt svo og loftið, og er það mikil bót í máli. Um vorið fór dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður ásamt Þor- steini Gunnarssyni arkitekt, Bjarna Ólafssyni smið og Þór Magnús- syni safnverði út í Viðey, og framkvæmdu þeir lauslega sko'ðunar- gerð á húsinu. Er í ráði, að Þorsteinn Gunnarsson geri tillögur til endurbóta hússins, en hann er sérlærður á sviði sögulegrar húsagerð- arlistar og endurbyggingar gamalla húsa. Bjarni Ólafsson annaðist viðgerð kirkjunnar í Viðey á sínum tíma og hefur unnið ýmis svipuð verk fyrir safnið og mun væntanlega taka áð sér viðgerð stofunnar, er þar að kemur. Ekki var þó hægt að hef jast handa um viðgerð á þessu ári vegna féleysis, en fyrri hluta sumars fóru starfsmenn Þjóð- minjasafnsins ásamt verkamönnum þrívegis út í eyjuna og hreinsuðu stofuna alla og næsta umhverfi hennar, en mikið verk er þó enn óunnið við snyrtingu lands þess, sem ríkið keypti. Um haustið fékkst svo dálítil upphæð úr ríkissjóði til að byrgja glugga og dyr stofunnar og firra hana þarme'ð frekari skemmdum af völdum vatns og snjóa, sem áttu greiða leið um allt húsið áður. Á fjárlögum fyrir 1969 er ákveðið að leggja eina milljón króna til við- gerðar stofunnar, og verður því væntanlega hafizt handa um viðgerð á næsta vori. Ennfremur er eftir að girða land það, sem ríkissjóður eignaðist, og þarf að gera þa'ð á sumri komanda. Ekkert nýtt ger'ðist í málum Nesstofu á árinu, en á hana hefur verið minnzt í skýrslum undanfarinna ára. Fyrir nokkrum árum voru hafnar samningaumleitanir um kaup á stofunni, en þær strönduðu á því, að ekki hafði verið samþykkt skipulag fyrir svæðið umhverfis stofuna, en eigendur vildu fá í staðinn íbúðarhús í næsta nágrenni hennar. Þetta mál þarf nú að taka upp aftur og stefna að því, að ríkið eignist þetta merka hús á næstu árum. I málefnum gömlu bæjanna var það helzt, að mikil viðgerð var