154 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS lega þrifin og verkfæri geymd á staðnum, öðrum skilað. Torfefni öllu og moldarhaugum úr veggjum annaðist Gunnlaugur í Hátúni flutn- ing á. Grjótið flutti Eiríkur á Völlum." Theodór Daníelsson, Njáll Gnðmundsson. Við þessa skýrslu er því að bæta, að eftir viðgerðina voru öll þil máluð að nýju, og gerði það Sigurður Snorrason málarameistari. Ætti bærinn í Glaumbæ ekki að þarfnast teljandi viðgerða á næstu árum fram yfir árlegt viðhald og eftirlit, en þó er enn eftir að smíða upp að mestu tréverkið í Gusu annað en grind. Þjóðminjavörður kom að Keldum hinn 17. ágúst og athugaði ástand gömlu bæjarhúsanna. Ljóst er, að á næstu árum verður að ráðast í rækilega viðgerð þeirra, bæði gamla skálans og annarra húsa. Bað- stofan er verst farin, og má heita, að norðurendinn sé að falli kominn, enda mun ekkert hafa verið hreyft við henni síðan hún var reist árið 1891. Er sýnt, að taka verður fyrir húsin eitt af öðru árlega og gera öll bæjarhús þannig upp í áföngum, en Keldur eru afar fjölsóttur ferðamannastaður, og koma þangað þúsundir manna árlega, og ríður því á að hafa þar allt í sem beztu lagi, og á þetta reyndar við um alla þá staði, sem eru undir vernd Þjóðminjasafnsins. Þessi mikli ferða- mannastraumur veldur sums staðar nokkrum erfiðleikum, þar sem núverandi bæjarhús standa fast við gömlu byggingarnar, og verður því allmikill átroðningur af þeim sökum. Á undanförnum árum hefur oft verið rætt um framtíð gamla bæj- arins á Þverá í Laxárdal, sem var byggður um 1850 og búið hefur verið í til skamms tíma. Bærinn er mjög gott sýnishorn af norð- lenzkum burstabæ, enda er hann reisulegur og myndar ásamt kirkj- unni, sem er hlaðin steinkirkja frá 1878, mjög góða heildarmynd af kirkjustað á 19. öld. Auk þess er bærinn merkilegur sögulega séð, en í honum var Kaupfélag Þingeyinga stofnað 1882. Síðustu árin hefur bærinn hrörnað nokkuð, og síðastliðið vor þótti sýnt, að gera yrði baðstofuna upp frá grunni, ef hún ætti ekki að eyði- leggjast, enda hafði ekki verið hreyft við henni um 120 ára skeið. Voru heimamenn á Þverá fengnir til að endurbyggja baðstofuna, og kostaði safnið þá viðgerð. Á næstu árum verður væntanlega að end- urbyggja önnur bæjarhús, en þessum bæ ætti að vera borgið héðan af, og verður hann að öllum líkindum tekinn á fornleifaskrá innan tíðar. Á Þverá var sú fyrirhyggja höfð, að nýja íbúðarhúsið var reist all-