SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1968 155 göðan spöl frá bænum og nýtur hann sín því fullkomlega, auk þess sem gestaheimsóknir ættu ekki að valda heimafólki teljandi ónæ'ði. Ekki varð af því, að Gamla búðin á Eskifirði yrði flutt á árinu, en safnið hafði boðizt til að taka þátt í kostnaði við það verk. Þó var undirbúningur hafinn, meðal annars fór Þorsteinn Gunnarsson arkitekt austur á Eskif jörð og mældi og teiknáði húsið mjög nákvæm- lega. Greiddi safnið kostnaðinn við það. Væntanlega kemst flutningur hússins í kring á næsta ári, og verður þá hægt að hef ja viðgerð þess. Eskifjarðarhreppur er eigandi hússins, og hefur hreppsfélagið sýnt áhuga á varðveizlu þess. Bjarni Ólafsson smi'ður kom að Sjávarborg í Skagafirði á vegum safnsins og skoðaði gömlu kirkjuna þar, sem minnzt var á í sfðustu skýrslu. Skilaði Bjarni skýrslu um athugun sína, en enn er vel unnt að flytja kirkjuna af þeim stað sem hún er nú, en finna þarf henni betri stað og sem næst upphaflega kirkjustæðinu, sem mun þó sjálft ekki hentugt kirkjustæði. Stefán Jónsson arkitekt var hjálplegur við að fá mann til að búa húsið midir veturinn og styrkja það til bráða- birgða. Hins vegar hrakar því mjög ár frá ári, og þarf að ráðast í flutning og vi'ðgerð þess fljótlega, ef það á að takast án alltof mikils kostnaðar. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um bæinn í Selinu í Skafta- felli, en sá bær er mjög illa farinn, og þyrfti að smíða hann algerlega upp að nýju, ef hann á að varðveitast. Hins vegar er hann gott sýnishorn af skaftfellskum bæ með fjósbaðstofu, og þar sem Skafta- fell er nú orðið þjóðgarður, væri á ýmsan hátt æskilegt, ef hægt væri að endurbyggja þennan bæ og hafa til sýnis á þessum merka og skemmtilega stað, en fyrirsjáanlegt er, að fer'ðamannastraumur mun aukast mjög að SkaftafelH og í Öræfin eftir að bílfært er orðið þangað. I Skaftafelli eru einnig mjög merkileg útihús, einkum hlöður með fornu byggingarlagi, sem brýn nauðsyn er að varðveita og þyrfti að athuga það húsamál allt í heild. Til stóð á þessu ári, að safni'ð veitti liðsinni til að taka ofan og merkja baðstofu á Brekku í Hróarstungu, er Menningarsamtök Hér- aðsbúa hafa keypt og hyggjast varðveita á byggðasafni, þegar tök verða á. Sökum breytinga á starfsliði og anna safnmanna varð þessu ekki komið við, en áformað er að vinna þetta verk að vori. Búast má við, að í framtíðinni verði meira farið inn á þessa braut í verndun gamalla bygginga, sem sé að varðveita einstök hús á safni, en þó verður aðeins hægt að varðveita tiltölulega takmarkaða parta gam- alla bygginga eins og sveitabæja á þennan hátt. Gömlu húsin, stofan